Klikkað verk um klikkun
Jólasýning Borgarleikhússins er verkið Ófagra veröld eftir Anthony Neilson. Það verður frumsýnt 29.desember. Ófagra veröld er ævintýri sem hefur sterka tilvísun í Lísu í Undralandi eftir Lewis Carol. Líkt og í sögu Lewis Carol er verkið lýsing á samfélaginu, gildum þess, þversögnum og áskorunum, um leið og það er þroskasaga Lísu. Við ferðumst með Lísu til Sundralands og kynnumst þar sérkennilegum lögmálum þeirrar víddar. Á ferð sinni um Sundraland, mæta Lísu krefjandi verkefni og óvæntar uppákomur. Líkt og hjá Carol kemst Lísa heim. Þar gilda önnur lögmál og verkefnin eru önnur. Lísa stendur frammi fyrir vali. Hvorumegin vill hún...
Read More


