100 ár í Samkomuhúsinu á Akureyri
Þann 20. janúar verður leikritið Svartur köttur eftir Martin McDonagh frumsýnt hjá LA. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið athygli. Sömu sögu er að segja um mörg fyrri verka McDonaghs, s.s. Koddamanninn, Halta Billa frá Miðey og Fegurðardrottninguna frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Um sérstaka hátíðarfrumsýningu er að ræða í tilefni af því að þann 20. janúar eru 100 ár frá fyrstu frumsýningu í Samkomuhúsinu. Þetta hófst allt með því að dauður köttur fannst á veginum – besti vinur Patreks í öllum heiminum. Hann leitar hefnda, Mairead leitar að ástinni, allir leita að Patreki nema...
Read More


