Author: lensherra

Allt & ekkert frumsýnt í kvöld

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir æfingar á ÖLLU & ENGU hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið hafði í upphafi vinnuheitið EKKERT og eins og það gefur til kynna byrjaði hópurinn með EKKERT í höndunum. EKKERT handrit. EKKERT haldreipi. Það var upphafið að ÖLLU & ENGU. Hópurinn, sem er samansettur af jafnt gömlum sem nýjum meðlimum LK, hefur komið víða við þessar vikur, en er núna kominn á áfangastað. Leikstjóri er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson. ALLT & EKKERT hópurinn hefur grafið upp safn af sögum og mun í byrjun mars bjóða uppá líflegar frásagnir, kaffi og með því í hlýlegu og þægilegu umhverfi....

Read More

Herranótt Molnar

Herranótt er elsta leiklistarstofnun landsins. Að leiksýningum undir þessu nafni hafa ungmenni staðið  allt frá átjándu öld. Nú setur þetta rótgróna félag upp sína 162. sýningu. Og eldist vel. Virðist satt best að segja bara ekki eldast neitt. Verkið er frá 1906, Liliom eftir Molnár. Það hefur einnig gengið í endurnýjun lífdaga, eins og félagið gerir ár hvert. Skemmst frá því að segja að leikgerðin er einstaklega lipurlega gerð. Það er meira en að segja það að færa gömul verk til nútímans og staðfæra þau, og það misheppnast oft, en ekki í þessu tilfelli. Útkoman er stórglæsileg og valið...

Read More

Gott kvöld með Prímadonnum í Eyjafjarðarsveit

Föstudagskvöldið 23.febrúar síðastliðið frumsýndi Freyvangsleikhúsið leikritið Prímadonnurnar eftir Ken Ludwig í þýðingu Sögu Jónsdóttur sem einnig leikstýrir verkinu. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta verk er sett upp hér á landi. Freyvangsleikhúsið er eitt besta áhugaleikfélagið á landinu. Félagið hefur á að skipa afar góðan leikhóp, mjög góða og reynda leikara sem hafa verið lengi að og sífellt dettur inn nýtt, kröftugt og hæfileikaríkt fólk. En það sem er sennilega sterkasta hlið Freyvangsleikhússins er baklandið og tryggir áhorfendur. Styrkur sýningarinnar er falinn í góðri leikstjórn og góðum leikurum. Saga Jónsdóttir er mjög góð að ná því besta út...

Read More

Örverkasamkeppni fyrir ungt fólk

Febrúar er mánuður unga fólksins hjá Borgarleikhúsinu. Af því tilefni efnir Borgarleikhúsið til örleikritunarsamkeppni fyrir ungt fólk. Skorað er á fólk undir 25.ára og námsmenn  að prófa að nota leikhúsið sem farartæki fyrir skoðanir, tilfinningar og/eða hugsanir sínar. Vinningshafinn fær að launum árskort í leikhúsið fyrir tvo. Skiladagur verkanna er 7.mars frá 13:00-17:00  og verður þá boðið eru upp á kaffi, djús og með því í forsal leikhússins, þar sem tekið verður á móti hugmyndum og dómnefnd situr við lestur allan daginn.   Valið verður úr verkunum samdægurs og úrslitin kunngerð í lok dagskrárinnar, Leikhúsið og unga fólkið/Leikhús sem...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert