Leikfélag Hveragerðis sextugt
Leikfélag Hveragerðis heldur upp á 60 ára afmæli sitt um þessar mundir. Í tilefni þess mun leikfélagið frumsýna þann 24. febrúar n.k. rokkóperuna Jesus Christ Superstar eftir Tim Rice og Andrew Loyd Webber. Leikstjórar eru Jón Ingi Hákonarson og Laufey Brá Jónsdóttir. Alls taka 17 leikarar þátt í sýningunni og fjögura manna rokkhljómsveit sér um undirleik. Æfingar hófust 3. janúar og hafa gengið vel. Í aðalhlutverkum eru Hafsteinn Þór Auðunsson, Þorgils Óttar Vilberg Baldursson og Halldóra Rut Bjarnadóttir. Sýningar eru í húsi leikfélagsins, Völundi, að Austurmörk 23. Önnur sýning verður þann 28. febrúar, en þann dag er einmitt stofnunarafmæli...
Read More


