Ást, 10. mars
Laugardaginn 10.mars frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur í samvinnu við Vesturport söngleikinn ÁST á Nýja sviði Borgarleikhússins. Söngleikurinn er eftir þá Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson. Sagan fjallar um ástir og daglegt líf heimilismanna á elliheimili. Nína eldri kona utan af landi kemur í skammtímavistun á elliheimili í höfuðborginni, fyrir tilstuðlan ábyrgðarfulls sonar. Vistin hefur ekki þau áhrif á Nínu sem sonurinn hefði óskað. Á heimilinu er fjörugt félagslíf og í gegnum Nínu kynnumst við heimilisfólki, sögum þess, örlögum og ástum. Það er sannkallað stórskotalið leikara sem stígur á stokk og margir hverjir sem ekki hafa leikið opinberlega í...
Read More


