Author: lensherra

Himnaríki í Eyjum

Leikfélag Vestmannaeyja er nú á fullu að æfa Himnaríki eftir Árna Ibsen, í leikstjórn Jóns Inga Hákonarsonar Þetta er skemmtilegt og krefjandi verk fyrir leikarana en tveir þeirra eru að stíga sín fyrstu skref á sviði. Æfingarnar ganga mjög vel og er áætlað að frumsýna þann 5. apríl n.k. í Bæjarleikhúsinu í Vestmannaeyjum. Einnig er fyrirhugað að sýna eina sýningu til styrktar umönnunarsjóði Árna Ibsen í lok sýningartímabilsin....

Read More

Masterclass í söng og raddbeitingu

Leikfélag Selfoss býður upp á áhugavert söng- og raddbeitingarnámskeið dagana 14.-15. apríl í Litla leikhúsinu við Sigtún. Kennari verður Kristjana Stefánsdóttir, djasssöngkona og söngkennari, en Kristjana kennir söng við FÍH, ásamt því sem hún hefur unnið við raddþjálfun leikara bæði í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Núna síðast vann hún við raddþjálfun í sönleiknum Leg, sem nýlega var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu. Einnig hefur hún séð um söngþjálfun í X-Factor og Idol sjónvarpsþáttunum vinsælu. Kristjana styðst við Complete Vocal tæknina frá Catrine Sadolin, einum virtasta raddsérfræðingi í heimi. Námskeiðið verður með svokölluðu masterclass formi, þ.e. hægt verður að skrá sig sem virkan...

Read More

Leiklistarskóli Bandalagsins 2007

Starfstími skólans á þessu ári er frá 9. til 17. júní að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal og helgarnar 12. til 14. og 26. til 28. október í Reykjavík. Boðið er upp á þrjú námskeið í Svarfaðardalnum, Leiklist I, kennari Ágústa Skúladóttir, sérnámskeið fyrir leikara, kennari Stephen Harper og sérnámskeið fyrir leikstjóra, kennari Egill Heiðar Anton Pálsson. Í október verða tvö námskeið í leikhúsförðun, kennari Gréta Boða. Skráning á Húsabakka-námskeiðin hefst 15. mars og lýkur 15. apríl. Skráning á förðunarnámskeiðin hefst 15. mars og lýkur 15. september. Umsóknir sendist á netfangið info@leiklist.is. Takið fram hvaða námskeið er sótt um, nafn umsækjanda,...

Read More

Örleikritakeppni fyrir framhaldsskólanema

Í fjórða sinn standa leiklistardeild LHÍ og  fræðsludeild Þjóðleikhússins nú sameiginlega að leikritunarsamkeppni fyrir framhaldsskólanema. Örleikrit er einfaldlega mjög stutt leikrit, og verður í þessu tilfelli að uppfylla eftirtalin skilyrði: Lengd: Hámark 10 mínútur. Lágmark 5 mínútur (u.þ.b. 2-4 bls.) Leikarar: 3 eða færri. Leikmynd: Gamall 1 m. hár skápur– ekkert annað. Leikmunir: Engir Verkin mega ekki hafa birst eða verið sýnd áður. Handrit skilist rafrænt á netfangið fraedsla@leikhusid.is (Upplýsingar um höfunda verða aðskildar frá verkunum áður en þau eru lögð fyrir dómnefnd).  Einnig má skila verkunum undir dulnefni á skrifstofu leiklistardeildar LHÍ að Sölvhólsgötu 13 merktum ,,Örleikritasamkeppnin Skápur”. Nafn höfundar, símanúmer og netfang skal þá fylgja í lokuðu umslagi merktu dulnefninu. Velkomið er að senda fleiri en eitt verk í keppnina. Nokkur bestu örverkin verða leiklesin í Þjóðleikhúsinu af nemendum í leiklistardeild LHÍ úrslitakvöldið 3. apríl 2007. Spron leggur sem fyrr fram verðlaunafé í samkeppnina. Í fyrstu verðlaun eru 50 þúsund krónur, í 2. verðlaun eru 30. þúsund krónur og 3. verðlaun eru 20 þúsund krónur. Láttu slag standa! Skilafrestur er til 19. mars 2007 Allar frekari upplýsingar veitir Vigdís Jakobsdóttir hjá fræðsludeild Þjóðleikhússins;...

Read More

Sex í sveit í Borgarnesi

Föstudaginn 9.mars frumsýnir Leikdeild UMF Skallagríms í Borgarnesi gamanleikritið Sex í Sveit. Verkið verður sýnt í félagsheimilinu Lyngbrekku. Sex leikarar taka þátt í sýningunni og leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Leikdeildin hefur verið á miklum hrakhólum undanfarin 7 ár og hrakist milli gamalla iðnaðarhúsa í Borgarnesi. Sökum þess hefur ekki verið tækifæri á að setja upp leikrit jafn títt og menn hafa viljað. En þetta árið fékk leikdeildin inni í félagsheimilinu Lyngbrekku, sem er um 15 km vestan við Borgarnes. Lyngbrekka er kjörinn staður fyrir leiksýningar og er það von allra er að verkinu koma að þar fá leikfélagið aðsetur...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert