Author: lensherra

Viltu tjá þig?

Nú hefur þeim möguleika verið bætt við hér á vefnum að lesendur geta hafið umræður á spjallborði, beint út frá tilteknum fréttum eða greinum. Ef smellt er á Lesa meira… neðan við grein er hún öll birt og neðst má þá sjá tengil sem opnar nýtt innlegg á spjallborði um greinina. Ef umræða er þegar hafin um greinina bætist nýtt innlegg við hana. Lesendur eru hvattir til að prófa með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.   Nú hefur þeim möguleika verið bætt við hér á vefnum að lesendur geta hafið umræður á spjallborði, beint út frá...

Read More

Ævintýri og leikgleði

Ungmennafélögin Baldur, Samhygð og Vaka í Flóahreppi, frumsýndu í félagsheimilinu Þingborg um helgina gleðileikinn Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare í leikstjórn Gunnars Sigurðssonar. Verkið fjallar um elskendur sem lenda í veseni og misskilningi og álpast inn í töfraskóg þar sem álfurinn Bokki stríðir þeim svo um munar. Inn í flækjuna blandast flokkur handverksmanna sem er staddur í skóginum að æfa leikþátt. Verkið er einn af allra vinsælustu gamanleikjum Shakespeare og er óhætt að segja að þessi leikgerð ungmennafélaganna þriggja hitti beint í mark. Mikil leikgleði og skemmtileg orka var á sýningunni og mátti vart á milli sjá hvorir...

Read More

Þið munið hann Jörund, á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Þið munið hann Jörund 24. mars næstkomandi í Félagsheimilinu á Hólmavík. Leikstjóri er Skúli Gautason, en hann hefur leikstýrt tveimur uppsetningum hjá leikfélaginu áður, Sex í sveit og Tobacco Road. Æfingar hafa gengið vel. Þó létu leikarar sig ekki muna um að eyða einni nótt á æfingatímabilinu uppi á Steingrímsfjarðarheiði. Þar voru þeir að að leika aukahlutverk í þýsku heimildamyndinni Nóttin langa (Die Längste Nacht) sem tekin var að hluta þar um slóðir. Annríki hjá leikurum fyrir vestan. Verkið verður að mestu sýnt í Félagsheimilinu á Hólmavík, en minna verður um leikferðir í þetta sinn en...

Read More

Ímyndunarveikin eða Þögn Molières

Þjóðleikhúsið hefur í samvinnu við “Pourquoi Pas – Franskt vor á Íslandi” boðið hingað til lands gestaleik á einu af vinsælustu verkum franskra leikbókmennta, Ímyndunarveikinni eftir Molière. Einn af áhugaverðustu leikstjórum Frakka af yngri kynslóðinni, Arthur Nauzyciel, leikstýrir sýningunni. Sýningin hefur hlotið mikið lof og verið sýnd víða um Frakkland og í Rússlandi á undanförnum árum.   Áhorfendum gefst hér einstakt tækifæri til að sjá sýningu á einu frægasta verki gullaldar franskrar leikritunar, í óvenjulegri og hrífandi leiksýningu. Sýningar verða á Stóra sviði Þjóðleikhússins fimmtudagskvöldið 22. mars og föstudagskvöldið 23. mars. Nálgun Nauzyciels við efniviðinn þykir í senn óvenju...

Read More

Nú fljúga hvítu englarnir í Logalandi

SÍðastliðna helgi opnaði Ungmennafélag Reykdæla kaffileikhús sitt í Logalandi. Á dagskrá eru tveir einþáttungar, “Flugfreyjuþáttur” og “Er það ég” eftir Kristínu Gestsdóttur, nokkur sönglög úr smiðju Magnúsar Eiríkssonar og rúsínan í pylsuendanum er svo leikritið “Nú fljúga hvítu englarnir” eftir Örnólf Guðmundsson ráðsmann í Reykholti. Leikritið segir frá fullorðnum sveitapresti, nokkuð ölkærum, og samskiptum hans við sóknarbörn sín, heimilisfólk og hið kirkjulega yfirvald. Þetta er frumflutningur á verkinu. Alls taka rúmlega 20 manns þátt í sýningunni, leikarar, söngvarar, tónlistarmenn og tæknifólk. Leikstjóri er Steinunn Garðarsdóttir á Grímsstöðum. Næstu sýningar eru fimmtudaginn 15. marsl, föstudaginn 16. mars og laugardaginn 17....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert