Author: lensherra

Hernám í Hrísey

Leikklúbburinn Krafla fagnar um þessar mundir 30 ára starfsafmæli en margt hefur verið brallað og margar góðar sýningar sýndar á þessum árum. Undanfarið hafa félagar í Kröflu æft verk sem þeir sömdu sjálfir í tilefni afmælisins. Leikstjóri er Linda María Ásgeirsdóttir. Verkið ber heitið Hernám í Hrísey og fjallar um eins og titillinn ber með sér hernámasárin í Hrísey, t.d. hvernig húsmæðurnar í Hrísey létu til sín taka og hvaða áhrif hernámið hafði á stúlkurnar og drengina. Leikritið er ekki sannsögulegt á nokkurn hátt en gæti þó endurspeglað á einhvern hátt hvernig lífið var á hernámsárunum. Verkið er því...

Read More

Tónlistardagskrá hjá Hugleik

Eitt af aðalsmerkjum leikfélagsins Hugleiks hefur ætíð verið frumsamin tónlist. Í leikritum félagsins, sem einatt eru líka frumsamin, hefur heyrst allt frá óperu til þungarokks. Þar hafa heyrst ættjarðarsöngvar, bölbænir, fagnaðarsöngvar yfir andlátum manna og sungin bréf að handan. Hugleikur ætlar að enda leikárið að þessu sinni með tónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum, þar sem flutt verða mörg vinsælustu lögunum úr sýningum félagsins. Á dagskrá verða um tuttugu lög, í flutningi hljómsveitar, kórs og einsöngvara. Meðal annars verður frumflutt lokalagasyrpa, sem var sérstaklega sett saman fyrir þetta tækifæri. Tónleikarnir verða tvíteknir. Þeir fyrri verða í Þjóðleikhúskjallaranum þriðjudagskvöldið 29. maí kl. 21,...

Read More

Allra síðustu aukasýningar á Sex í sveit

Gríðarlega góð aðsókn hefur verið að Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks, Sex í sveit í leikstjórn Jón Stefáns Kristjánssonar. Þrjár aukasýningar í síðustu viku seldust upp á fáum dögum svo nú hefur verið ákveðið að bæta enn við tveimur aukasýningum. Þær verða í Bifröst: laugardaginn 26. maí kl. 15:00 mánudaginn 28. maí kl. 15:00. Miðapantanir alla daga í síma 849 9434....

Read More

Dýrin í Hálsaskógi í Elliðaárdalnum

Hvítasunnudaginn 27. maí mun Leikhópurinn Lotta frumsýna barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi í Elliðaárdalnum. Sýnt verður klukkan 14:00 og 16:00 en sýningin er um klukkutíma löng, full af glensi og fjöri. Þar sem sýnt er utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að sitja á og hlýja sér ef kalt er. Miðinn kostar 1.500 krónur fyrir fullorðna en fyrir börn sem eru í fylgd með fullorðnum kostar miðinn 1.000 krónur. Leikhópurinn mun halda áfram að sýna í Elliðaárdalnum í sumar og er áætlað að sýna þar alla miðvikudaga í sumar klukkan...

Read More

Námskeið á Act Alone í sumar

Leiklistarhátíðin Act Alone verður haldin á Ísafirði í sumar eins og undanfarin ár. Að þessu sinni verða tvö námskeið í boði. Áhugasömum er bent á að skrá sig sem fyrst, þar sem þátttakendafjöldi er takmarkaður. Námskeiðin sem í boði verða eru: BRÚÐULEIKHÚS Kennari: Helga Arnalds, brúðuleikari Tími: 28. júní – 30. júní Kennslustundir: 9 Verð: 10. þúsund Taka þátt: Sendið tölvupóst á komedia@komedia.is Við lifum á tímum sem einkennast af nálgun, samruna og hverfandi landamærum. Allt má – blanda saman nýju og gömlu, myndlist, orðum, tónlist, leiklist, kvikmyndalist og dansi. Allar greinar listarinnar hafa orðið fyrir áhrifum af þessum...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert