Íslenskur leikhópur sýnir í Suður-Kóreu
Annað hvert ár heldur Alþjóðasamband áhugaleikhúsa (IATA/AITA) leiklistarhátíð samhliða aðalfundi hreyfingarinnar. Í annað hvert skipti er viðburðurinn í Mónakó, en á móti annars staðar í heiminum. Þetta árið verður hátíðin haldin í borginni Masan í Suður-Kóreu. Hér má sjá nánari upplýsingar um hana. Í annað skiptið í röð á Bandalag íslenskra leikfélaga sýningu á þessari hátíð, en þátttaka íslenskir leikhópar hafa annars verið sjaldséðir á leikistarhátíðum IATA/AITA. Í þetta skipti er það samstarfsverkefni Hugleiks og Leikfélags Kópavogs, Memento Mori, sem verður sýnt á hátíðinni fimmtudaginn 2. ágúst. Einnig fer framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra leikfélaga, Vilborg Valgarðsdóttir, á ráðstefnuna og fundi...
Read More


