Leikfélag Fljótsdalshéraðs í Þjóðleikhúsinu
Loksins geta leikhúsunnendur barið augum sýninguna dularfullu sem hreppti titilinn Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins í árlegri samkeppni Þjóðleikhússins. Sýningar verða tvær, fimmtudag 7. júní og föstudag 8. júní og er þegar uppselt á fyrri sýninguna. Miðapantanir eru hjá miðasölu Þjóðleikhússin. Listin að lifa var sett upp í tilefni af 40 ára afmæli Leikfélags Fljótsdalshéraðs. Í tilefni þessa merkisafmælis ákvað stjórn félagsins að láta skrifa fyrir sig leikrit. Til þess var ráðið eitt af afsprengjum leikfélagsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Leikfélag Fljótsdalshéraðs verður fyrir valinu í vali Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins. Höfundur verksins, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, er frá...
Read More


