Langstærsti draumurinn í Sundhöllinni
Lýðveldisleikhúsið flytur annan hluta fjölleiksýningarinnar Langstærsti draumurinn í Sundhöllinni við Barónsstíg á Menningarnótt. Þessi hluti ber nafnið Uppflosnað fólk og er eftir Benóný Ægisson. Fyrsti hluti verksins, Þeir stífluðu dalinn minn, var fluttur í innilauginni í Laugardalnum fyrr í mánuðinum. Leikarar í þessum hluta eru Alexía Björg Jóhannesdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Sýningar á Uppflosnað fólk verða aðeins fjórar, allar í Sundhöll Reykjavíkur á Menningarnótt 18. ágúst og eru sýningarnar kl. 14:14, 15:15, 18:18 og 19:19 og er aðgangur ókeypis. Langstærsti draumurinn er fjölleiksýning með blandaðri tækni sem Lýðveldisleikhúsið hyggst setja upp á leikárinu...
Read More


