Leikfélagið Sýnir í Öskjuhlíð
Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Vakandi manns draumur næstkomandi miðvikudag, þann 1. ágúst klukkan 20 í Öskjuhlíð. Verkið er spunaverk unnið úr þjóðsögum um álfa og huldufólk. Leikfélagið Sýnir er áhugaleikfélag sem starfar á landsvísu og á það einmitt 10 ára afmæli nú í ár. Félagið hefur sett upp útileiksýningar á hverju sumri síðan 1998. Leikstjórar eru Hrund Ólafsdóttir og Hörður Skúli Daníelsson en tónlistarstjóri er Helga Ragnarsdóttir, tónsmíðanemi við LHÍ. Verkið er í tveim þáttum, Hrund leikstýrir dramatískri sögu af sambandi stúlku við huldumann, sem nefnist "Og hefi ég þann sopa sætastan sopið" og er unninn er upp úr...
Read More


