Author: lensherra

Leikárið að hefjast hjá Stoppleikhópnum

Þá er nýtt leikár að hefjast hjá Stoppleikhópnum og óhætt að fullyrða að sjaldan eða aldrei hafi dagskráin verið eins fjölbreytt en leikhópurinn mun í vetur sýna 6 íslensk verk ætluð börnum og unglingum. Þar af frumsýnir leikhópurinn 3 ný verk, 2 fyrir unglinga og eitt fyrir börn. Allar sýningarnar eru farandsýningar sem unnt er að koma með í skóla. Um þessar mundir standa æfingar yfir á nýjasta verkinu en það er „Ungi maðurinn“ eftir Þorvald Þorsteinsson. Verkið fjallar um leikarahjón sem virðast hafa lokast inni í eigin leikhúsi. Eiginmaðurinn hefur ekki lengur áhuga á að leika en er...

Read More

Fjárföflunarsýningar á Hnerranum

Leikfélag Selfoss er á leið með gamanleikinn Hnerrann eftir Anton Chekov á leiklistarhátíð í Rokiskis í Litháen dagana 5.-.7. október nk. og sýnir af því tilefni tvær aukasýningar af verkinu síðustu helgina í september. Sýnt er í Leikhúsinu við Sigtún og leikstjóri Hnerrans er Hörður Sigurðarson. Þeir sem misstu af þessari skemmtilegu sýningu ættu ekki að látta happ úr hendi sleppa. Sýningarnar verða föstudaginn 28. september og laugardaginn 29. september kl....

Read More

Verkefni Kómedíuleikhússins leikárið 2007 – 2008

Kómedíuleikhúsið fagnar 10 ára afmæli í ár og er því komandi leikár sérlega viðmikið og glæsilegt. Í nóvember frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýjan einleik Jólasveinar Grýlusynir eftir Elfar Loga Hannesson og Soffíu Vagnsdóttur. Leikurinn er byggður á nýjum jólasveinakvæðum eftir Soffíu. Kvæðin úr sýningunni verða gefin út á bók í tilefni að frumsýningunni með teikningum eftir Marsibil G. Kristjánsdóttur. Verðlaunaleikurinn Gísli Súrsson verður á sínum stað en Gísli er nú að hefja sitt fjórða leikár. Gísli byrjar leikárið með stæl og fer hringinn í kringum landið í haust en leikurinn hefur verið sýndur yfir 150 sinnum bæði hér heima og erlendis....

Read More

Leikárið 2007-2008 í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið endurheimtir brátt sinn forna glæsileika eftir viðamiklar utanhússviðgerðir. Vetrardagskráin verður ekki síður glæsileg en húsið sjálft en í vetur frumsýnum við fjögur ný íslensk leikrit, tvö eldri íslensk verk og sjö erlend leikrit.Á nýju leikári verða fjögur ný íslensk verk frumsýnd í Þjóðleikhúsinu. Áslaug Jónsdóttir, margverðlaunuð bókverkakona, skrifar sitt fyrsta leikverk fyrir Þjóðleikhúsið sem og stallbróðir hennar úr rithöfundastétt, Hallgrímur Helgason. Einnig sýnir Þjóðleikhúsið ný verk eftir leikskáldin Bjarna Jónsson og Hugleik Dagsson. Aukinheldur verða tvö eldri íslensk verk á fjölunum; Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og leikritið Sólarferð, eitt vinsælasta leikrit Guðmundar Steinssonar. Vinkonurnar Skoppa og Skrítla snúa...

Read More

Nýtt leikár hafið hjá Möguleikhúsinu

Möguleikhúsið er nú að hefja átjánda leikár sitt, en frá upphafi hefur leikhúsið lagt áherslu á að bjóða upp á frumsamið íslenskt efni fyrir börn og unglinga og verður þetta leikár svo sannarlega engin undantekning frá þeirri reglu.Það verða níu íslensk verk á boðstólum hjá Möguleikhúsinu í vetur, ein ný sýning, ein sem tekin er upp að nýju eftir nokkurra ára hlé, fjórar frá fyrra leikári og tvær gestasýningar. Allt eru þetta farandsýningar sem unnt er að koma með í skóla, auk þess sem hópum býðst að koma og sjá sýningarnar í sal Möguleikhússins við Hlemm. Í leikhóp Möguleikhússins...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert