Author: lensherra

Þjóðleikhúsið frumsýnir Óhapp!

Óhapp!, nýtt verk eftir Bjarna Jónsson, verður frumsýnt í Kassanum við Lindargötu 7 nk. föstudag. Meðal leikara í sýningunni eru Atli Rafn Sigurðarson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson en leikstjóri er Stefán Jónsson. Óhapp! er óvanalegt stofudrama með þar sem ólíkir heimar skarast. Við lítum inn til ungra hjóna sem glíma við fortíðina og hvort annað, kennaraverkfall setur óvænt strik í reikning sjónvarpsstjarna, sálfræðingurinn leggur línurnar og kokkurinn töfrar fram unaðslegt lambakjöt. Hér er á ferðinni „heimilisleg“ umfjöllun um þjóðfélag sem er á kafi í sjálfu sér og ósköp kunnuglegt fólk sem...

Read More

Veturinn í Óperunni er að hefjast

Nú liggur dagskrá starfsársins 2007-2008 hjá Íslensku óperunni fyrir. Í vetur koma við sögu kvenhetjur frá ýmsum tímabilum, íslenskir sem erlendir stórsöngvarar, nýjungar í bland við dagskrárliði sem þegar hafa fest sig í sessi og ýmislegt fleira spennandi. Fyrsta frumsýning vetrarins verður 4. október, en þá verður frumsýnd hér á landi óperan Ariadne (Ariadne auf Naxos) eftir Richard Strauss. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecy, aðstoðarhljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason og leikstjóri er Andreas Franz.  Í helstu hlutverkum eru Hanna Dóra Sturludóttir, Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Kolbeinn Ketilsson og Ágúst Ólafsson, en þar að auki syngja í sýningunni þau Bergþór...

Read More

Fyrsta vinnusmiðja vetrarins

Nú er vetrarstarf FLÍSS- (Félags um leiklist í skólastarfi) og Fræðsludeildar Þjóðleikhússins að fara í gang. Dagskrá vetrarins er í smíðum og mun yfirlit yfir hana verða sent innan tíðar. Stefnt er að frábærri dagskrá í vetur og mun þar bjóðast frábært tækifæri til að dýpka notkun sína á leiklist í skólastarfi. Fyrsta vinnusmiðja vetrarins verður hinsvegar í næstu viku, fimmtudaginn 20. september, kl 20.00 í Dómssalnum að Lindargötu 3. Kennarar á námskeiðinu verða Jakob Kiørboe leiklistarkennari og Birte Zander tónlistarkennari en þau koma bæði frá Slagelse Pædagogseminarium í Slagelse. Bæði hafa þau mikla reynslu af kennslu og hafa skemmtilegar hugmyndir um leiklist í námi.Yfirskrift námskeiðsins er: „Frá persónulegri frásögn  til sýningar“. Unnið verður út frá reynslu þátttakenda, upplifunum, vonum, draumum og hræðslu með það að markmiði að gera sögu hvers og eins að sameiginlegri sögu alls hópsins. Smiðjan er bæði verkleg og fræðileg og mun standa í tvær og hálfa klukkustund. Verð er 3000 kr á manninn og borgast annaðhvort með peningum á staðnum eða með því að leggja inn á bankareikning eða reikningur er sendur á viðkomandi skóla er þátttakandi er frá. Missið ekki af þessu einstæða tækifæri að kynnast því hvað Danir eru að gera í sambandi við leiklist í...

Read More

Margt smátt 2007 í Borgarleikhúsinu

Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Borgarleikhúsinu í fjórða skipti þann 6. október nk. Hún verður með aðeins breyttu sniði frá síðustu hátíð, þ.e. hún verður haldin um miðjan daginn en um kvöldið verður haldið teiti þar sem öllum þátttakendum og öðru bandalagsfólki gefst kostur á skemmta sér saman. Meiri áhersla verður lögð á að gera þennan dag „hátíðlegri“ en gert hefur verið undanfarin ár.  Sýningar á hátíðinni hefjast klukkan 14:00 og líkur ekki síðar 18:00 en ætlunin er að marsera í skrúðgöngu frá skrifstofu Bandalagsins upp í Borgarleikhús fyrir sýningar og vera með uppákomur í anddyri Borgarleikhússins áður...

Read More

Námskeið í leikhúsförðun

Fyrirhugað er að halda tvö námskeið í leikhúsförðun í október. Það fyrra, sem er byrjendanámskeið, er þegar orðið fullt og kominn biðlisti en enn er hægt að skrá sig á framhaldsnámskeiðið. Skráningu lýkur laugardaginn 15. september Framhaldsnámskeið í leikhúsförðun, kennari Gréta Boða Þátttökugjald: kr. 14.000 Tími: 26. til 28. október 2007 Staður: Laugavegur 96, II hæð Skráningu lýkur 15. september Námskeiðið er sjálfstætt framhald af fyrra förðunarnámskeiðinu, ætlað þeim sem einhverja reynslu hafa af förðun fyrir leikhús og/eða hafa sótt byrjendanámskeið. Kennd verður „karakterförðun“, unnið með latex, skalla, krephár og fleiri efni sem notuð eru til að breyta og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert