Stoppleikhópurinn frumsýnir Óráðni maðurinn
Laugardaginn 22. september kl. 20:00 frumsýnir Stoppleikhópurinn Óráðna manninn, nýtt verk eftir Þorvald Þorsteinsson, í Tjarnarbíói. Viðfangsefnið verksins er í senn sígilt og óvenjulegt; nefnilega leit mannsins að réttu útgáfunni af sjálfum sér inni í öllum þeim aragrúa hlutverka sem hann verður að leika á lífsleiðinni. Uppselt er á frumsýningu en önnur sýning verður sunnudaginn 23. september kl. 20.00. Eftir það verður sýningin aðeins sýnd sem ferðasýning. Leikstjóri er Sigrún Sól Ólafsdóttir. Verkið fjallar um leikarahjón sem virðast hafa lokast inni í eigin leikhúsi. Eiginmaðurinn hefur ekki lengur áhuga á að leika en er því áhugasamari um alls kyns...
Read More


