Author: lensherra

Hálsfesti Helenu aftur á svið

Fimm sýningar á verkinu Hálsfesti Helenu verða sýndar núna í haust en verkið var frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í vor. Sú fyrsta verður í kvöld, föstudaginn 28. september. Leikritið er eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld Kanada, Carole Fréchette, en hún skrifaði verkið eftir að hafa dvalið um tíma í Líbanon árið 2000.  Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir en leikarar í sýningunni eru Edda Arnljótsdóttir, Arnar Jónsson og Guðrún Snæfríður Gísladóttir. Aðalpersóna leikritsins er Helena, kona frá norðlægu landi, sem er á heimleið af ráðstefnu í borg í Austurlöndum nær, þar sem uppbygging er hafin eftir langvarandi stríðshörmungar. Skyndilega ákveður hún að...

Read More

Halaleikhópurinn 15 ára

Halaleikhópurinn er 15 ára í dag. Leiklistarvefurinn óskar afmælisbarninu innilega til hamingju með daginn. Halaleikhópurinn er áhugaleikhópur fatlaðra og ófatlaðra og hefur það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla“. Ýmislegt er á döfinni hjá leikhópnum. Nú í september hefur Ágústa Skúladóttir verið með uppistandsnámskeið. Afrakstur þess verður að hluta til sýndur á afmælishátíð Halaleikhópsins og  einnig á stuttverkahátíðinni „Margt Smátt“ þann 6. okt. nk. í Borgarleikhúsinu. Stefnt er að því að halda tvö kaffileikhúskvöld um miðjan okt. og nokkur bíókvöld þar sem upptökur af eldri uppfærslum hópsins verða sýndar. Nánar auglýst síðar. Í vetur mun Halaleikhópurinn setja upp...

Read More

Aðalfundur hjá Leikfélagi Hörgdæla

Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla verður haldinn á Melum, Hörgárdal, mánudagskvöldið 1. okt. nk. og hefst kl: 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf ásamt lagabreytingum. Rætt verður um starfið á komandi vetri. Allir áhugasamir er hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á stefnu og starf félagsins.Stjórnin....

Read More

Aðalfundur hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Föstudaginn 28. september kl. 20 verður aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar haldinn í húsakynnum félagsins, Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Þar verður, auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, rædd starfsemi vetrarins og er allt áhugafólk um leiklist boðið velkomið, ekki síst þeir sem hafa áhuga á að ganga til liðs við félagið.Stjórn Leikfélags Hafnarfjarðar ...

Read More

Hamskiptin frumsýnd

Þjóðleikhúsið frumsýnir Hamskiptin eftir Franz Kafka á Stóra sviðinu, fimmtudaginn 27. september nk. Hér er á ferðinni ný íslensk uppfærsla á rómaðri sýningu leikhópsins Vesturports sem frumsýnd var í Lyric Hammersmith leikhúsinu London í fyrra og hlaut frábærar viðtökur. Hamskiptin eftir Franz Kafka er ein af þekktustu skáldsögum 20. aldarinnar en sagan þykir í senn skelfileg og bráðfyndin. Leikgerð sögunnar og leikstjórn sýningarinnar er í höndum Gísla Arnar Garðarssonar og Davids Farr. Í Hamskiptunum segir frá sölumanninum lúsiðna Gregor Samsa, sem vaknar upp einn morguninn í líki risavaxinnar bjöllu. Hamskipti þessi hafa skiljanlega mikil áhrif á hina ofurhversdagslegu Samsa-fjölskyldu...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert