Hversu lengi logar?
Leikritið Hjónabandsglæpir eftir franska leikskáldið Eric-Emmanuel Schmitt verður tekið til sýninga á ný í Þjóðleikhúsinu. Sýningar hefjast þann 11. október í Kassanum á Lindargötu 7. Verkinu var afar vel tekið í vor og var þéttsetið á allar sýningarnar sem og aukasýningar. Sýningin hlaut ennfremur afar góða dóma hjá gagnrýnendum. Hjónabandsglæpir er nýlegt verk eftir franska leikskáldið Eric-Emmanuel Schmitt sem íslenskir leikhúsgestir kannast mæta vel við en hann skrifaði einnig verkin Abel Snorko býr einn og Gesturinn sem bæði nutu mikilla vinsælda hér á landi. Hjónabandsglæpir er nærgöngult og átakaþrungið leikrit um ástina, minnið og gleymskuna, og það sársaukafulla hlutskipti...
Read More


