Author: lensherra

Fool 4 love í Austurbæ

Leikhópurinn Silfurtunglið frumsýndi fyrir skemmstu leikritið Fool 4 love eftir bandaríska leikskáldið Sam Shepard í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Tónlistina í verkinu samdi og flytur KK. Fool 4 love er sýnt í Austurbæ Fool 4 Love eftir Sam Shepard trónir að margra mati á toppnum sem besta nútímaleikrit Bandaríkjamanna. Verkið er ástríðufullt og einkennist af hraða, spennu og beittum húmor. Fyrrum elskendur hittast á yfirgefnu vegamóteli í útjaðri Mojave eyðimerkurinnar. May er á flótta undan Eddie en þrátt fyrir erfiðleika og ofbeldisfull samskiptin er ástin ekki langt undan. Eldri maður situr á veröndinni og talar við áhorfendur en nærvera...

Read More

Aðsóknarmet slegið á Akureyri

Hin geysivinsæla sýning á Óvitum mun víkja af sviði Leikfélags Akureyrar þann 6. janúar til að rýma til fyrir nýrri frumsýningu á Fló á skinni. Uppselt hefur verið á allar sýningar verksins en tvær síðustu aukasýningarnar eru komnar í sölu, þann 28. desember og 5. janúar. Þegar þessar sýningar hafa verið sýndar verður aðsóknarmet fallið því þá hafa fleiri séð Óvita á Akureyri en Fullkomið brúðkaup sem er vinsælasta sýning LA frá upphafi. Áhorfendur verða þá rúmlega 12.000. Reyndar verður Fullkomið brúðkaup áfram aðsóknarmesta sýning LA í heild sinni, því auk tæplega 12.000 gesta á Akureyri sáu um 14.000 gestir sýninguna í Reykjavík.  Óvitar víkja nú en stefnt er að útgáfu sýningarinnar á DVD fyrir páskana og sýningin snýr aftur á svið Samkomuhússins í september 2008. Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur voru frumsýndir hjá LA 15. september sl. í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Jón Ólafsson samdi nýja tónlist við verkið við texta Davíðs Þórs Jónssonar. 18 börn taka þátt í sýningunni og leika við hlið fullorðinna leikara en í aðalhlutverkum eru Guðjón Davíð Karlsson og Hallgrímur Ólafsson.   Það er stefna LA að sýna hvert verk þétt en í tiltölulega stuttan tíma og þannig tryggja að staðið sé við sýningaráætlun hvers leikárs. Af þeim sökum var ákveðið að taka Óvita af fjölunum nú þrátt fyrir að enn sé glimrandi aðsókn. Því verður gamanleikurinn Fló á skinni frumsýndur 8. febrúar og sýndur...

Read More

Jesus Christ Superstar jólasýning Borgarleikhússins

Þann 28. desember verður hin sígilda rokkópera frá 1970, Jesus Christ Superstar, frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Björn Hlynur Haraldsson en með hlutverk þeirra Jesúsar og Júdasar fara tveir af öflugustu rokksöngvurum landsins, Krummi Björgvins og Jens Ólafsson. Verkið segir frá síðustu vikunum í lífi Jesú Krists og varpar ljósi á samband hans og Júdasar Ískaríots sem er ekki sáttur við stefnuna sem Jesús hefur markað. Júdas er jarðbundinn, hann skilur ekki Jesú, sem sér hlutina í stærra samhengi og fylgir guðlegri köllun sem leiðir til krossfestingar. Þetta er heimsþekkt verk frá tuttugustu öld, boðskapurinn er sígildur...

Read More

Jólagleði LH frestað til 4. janúar

Við hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar höfum ákveðið að fresta jólagleði félagsins til föstudagsins 4. janúar. Tekið verður vel á móti meðlimum félagsins og annarra leikfélaga og munum við eiga notalega kvöldstund saman á nýju ári.   Hugmyndin er að þau félög sem eiga einhverja jólaþætti geti sýnt þá, svo munum við syngja saman og hafa jólagaman. Gleðin byrjar kl 21 þann 4. janúar og stendur fram á rauða nótt. Þeir sem vilja eitthvað sterkara en kaffi og piparkökur komi með það sjálfir. Félagið er til húsa í Gamla Lækjarskóla við lækinn í Hafnarfirði (stórt hvítt hús merkt Menntasetrið við Lækinn) Allir velkomnir!Bestu kveðjur, Guðrún Sóley Sigurðardóttir formaður Leikfélags Hafnarfjarðar...

Read More

Ívanov frumsýnt 26. desember

Jólasýning Þjóðleikhússins er aðlögun leikstjórans Baltasars Kormáks á Ívanov eftir Anton Tsjekhov. Verkið verður frumsýnt á á Stóra sviðinu þann 26. desember nk. og hefst sýningin kl. 20. Ívanov var áður drífandi athafnamaður en nú, aðeins hálffertugur að aldri, er hann útbrunninn. Hann finnur hvorki orku né vilja til eins eða neins, sinnir ekki veikri konu sinni og er við það að láta vonleysið ná tökum á sér. Sasha, ung og fögur menntakona, verður yfir sig ástfangin af Ívanov og einsetur sér að bjarga honum. Titilhlutverkið er leikið af Hilmi Snæ Guðnasyni en konurnar í lífi hans leika Margrét...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert