Óhöppum fjölgar – allra síðasta aukasýning
Vegna fjölda áskorana verður efnt til aukasýninga milli jóla og nýárs á leikritinu Óhapp! eftir Bjarna Jónsson. Leikritið var fyrsta verkefni leikárs Þjóðleikhússins í haust og fékk afbragðs góða dóma og góðar viðtökur hjá áhorfendum. Verkið tekur á íslenskum veruleika með nýstárlegum hætti en viðfangsefni þess er sjónvarps- og fjölskylduumhverfi nútíma Íslendinga. Margir hafa líkt verkinu við Stundarfrið, leikrit Guðmundar Steinssonar sem þótti á sínum tíma ná á einstaklega glöggan og frumlegan hátt að tjá ástand íslensku þjóðarinnar. Í verkinu er litið inn til ungra hjóna sem eru að gera upp glæsilega íbúð, en samtímis að takast á...
Read More


