Þjóðleikhúsið frumsýnir á Ísafirði
Leikritið norway.today verður frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þann 17. janúar nk. en þar er á ferðinni margverðlaunað verk sem vakið hefur athygli og áhuga ungs fólks á undanförnum árum. Tvær sýningar verða á verkinu, sýning fyrir nemendur Menntaskólans á Ísafirði kl. 10:45 en síðan verður hátíðarsýning fyrir almenning kl. 20. Þjóðleikhúsið hefur á undanförnum árum lagt sífellt meiri áherslu á leiksýningar sem höfða til ungs fólks en liður í því markmiði er að setja á stofn farandleikhús sem ferðast milli framhaldsskóla landsins. Í fyrra sló sýningin Patrekur 1,5 eftirminnilega í gegn en það verk var frumsýnt í Fjölbrautarskóla...
Read More


