Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Siglufjarðar
Fyrir skömmu hófust æfingar hjá Leikfélagi Siglufjarðar á uppsetningu leikársins. Fyrir valinu var bráðfjörgur ærsla- og gamanleikur eftir ítalska leikskáldið Carlo Goldoni. Leikurinn nefnist Tveggja þjónn og var fyrst sýndur hér á landi af Leikfélagi Reykjavíkur fyrir nokkrum áratugum í Iðnó þar sem Arnar Jónsson sló í gegn í aðalrullunni. Hinsvegar var leikurinn frumfluttur á Ítalíu fyrir langa löngu eða árið 1753. Sagt er að gömul vín eldist vel og á það líka við þennan leik Goldonis enda hefur hann verið sýndur um heim allan alveg frá því hann var leikinn fyrst. Leikstjóri er Elfar Logi Hannesson og er...
Read More


