Author: lensherra

Óþelló, Desdemóna og Jagó frumsýnt

Þann 30. janúar verður samvinnuverkefni Draumasmiðjunnar, Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins. Verkið heitir Óþelló, Desdemóna og Jagó og er nýstárleg leikgerð Gunnars I. Gunnsteinssonar á Óþelló eftir William Shakespeare, en Gunnar er jafnframt leikstjóri verksins.   Í sýningunni eru aðeins þrjú hlutverk og hefur hvert hlutverkanna sitt eigið tjáningarform, þ.e.a.s. dans, táknmál og talað mál. Þessum ólíku tjáningarformum er hér stefnt saman og standa þau annars vegar sjálfstæð eða tvinnast saman í dramatíska framvindu örlaga þriggja höfuðpersónanna í einu þekktasta  leikverki  Shakespeare. Framsetning verksins er fyrst og fremst sjónræn, en öðrum skynfærum er þó...

Read More

Magnús Geir í Borgarleikhúsið

Magnús Geir Þórðarson hefur verið ráðinn í stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins. Stjórn Leikfélags Reykjavíkur var einróma í vali sínu á næsta leikhússtjóra. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður stjórnar LR, tilkynnti um ráðninguna á fundi með starfsfólki Borgarleikhússins í hádeginu í dag. Ráðið er í stöðu Borgarleikhússtjóra til fjögurra ára í senn en Guðjón Pedersen, sem gegnt hefur starfinu síðustu átta ár, lætur af störfum í lok þessa leikárs. Magnús Geir nam leikstjórn við The Bristol Old Vic Theatre School, er master í leikhúsfræðum frá The University of Wales, og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur leikstýrt fjölda leiksýninga. Meðal uppsetninga...

Read More

Æfingar hafnar hjá Leikfélagi Siglufjarðar

Fyrir skömmu hófust æfingar hjá Leikfélagi Siglufjarðar á uppsetningu leikársins. Fyrir valinu var bráðfjörgur ærsla- og gamanleikur eftir ítalska leikskáldið Carlo Goldoni. Leikurinn nefnist Tveggja þjónn og var fyrst sýndur hér á landi af Leikfélagi Reykjavíkur fyrir nokkrum áratugum í Iðnó þar sem Arnar Jónsson sló í gegn í aðalrullunni. Hinsvegar var leikurinn frumfluttur á Ítalíu fyrir langa löngu eða árið 1753. Sagt er að gömul vín eldist vel og á það líka við þennan leik Goldonis enda hefur hann verið sýndur um heim allan alveg frá því hann var leikinn fyrst. Leikstjóri er Elfar Logi Hannesson og er...

Read More

Nemendur Listaháskólans með sýningu í Tjarnarbíói

Föstudaginn 25. janúar kl. 20:00, mun hópur nemenda úr Listaháskóla Íslands sýna perfomans verkið There is a police inside our heads í Tjarnarbíói. Verkið er samvinnuverkefni 14 nemenda úr hönnunar-og arkítektúr-, myndlistar-, tónlistar- og leiklistardeildum Listaháskóla Íslands og varð til á einungis þremur vikum.   Öll listformin sem kennd eru við Listaháskólann voru höfð að leiðarljósi við sköpun verkins og er því um að ræða skemmtilega blöndu tónlistar, hönnunar, myndlistar, videolistar og performans (leiklistar). Óhefðbundin sýning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Miðaverð er aðeins 500 kr.   AÐEINS ÞESSI EINA SÝNING...

Read More

Afar skemmtileg afmælissýning

Leikfélag Selfoss sýnir um þessar mundir gamanleikinn Með táning í tölvunni eftir einn virtasta og vinsælasta farsahöfund heims í dag, Ray Cooney. Magnús J. Magnússon var á frumsýningunni þann 11. janúar og skemmti sér hið besta. Föstudaginn 11. janúar frumsýndi Leikfélag Selfoss gamanleikritið Með táning í tölvunni eftir Ray Cooney í leikstjórn Jóns Stefáns Kristjánssonar. Leikrit þetta er fjallar um sömu aðalpersónur og leikritið Með vífið í lúkunum sem leikfélagið frumsýndi 1999. Ég sá sýninguna 1999 og var mjög hrifinn af henni, leikurinn hraður og uppsetningin afar skemmtileg. Það var því spennandi að sjá sýninguna núna, sami höfundur, leikstjóri...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert