Author: lensherra

Beinagrindin í Borgarleikhúsinu 6. og 8. febrúar

Alliance française, Borgarleikhúsið og Vetrarhátíð í Reykjavík bjóða landsmönnum upp á japansk- franskan nýsirkus dagana 6. til 9. febrúar, en þá kemur sýningahópurinn Oki Haiku hingað til lands með gullfallega og stórglæsilega sýningu sem ber yfirskriftina Beinagrindin.   Þetta er heillandi sýning fyrir alla aldurshópa, í senn sirkus, tónlist, dans- og ljósasýning. Japanski listamaðurinn Keisuke Kanaí leikur þar á einstaklega frumlegan og skemmtilegan hátt með samspil ljóss og skugga. Tónlistarmaðurinn Rui Owada leikur lifandi tónlist á sýningunni. Leikstjóri er Sébastien Lalanne.   Sýningarhópurinn Oki Haiku hefur áður komið hingað til lands, komu og sýndu verkið Hreyfa ekki hreyfa í...

Read More

Fló á skinni frumsýnd hjá LA

Föstudaginn 8. febrúar verður einn vinsælasti farsi allra tíma, Fló á skinni, frumsýndur hjá LA í glænýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar. Fló á skinni hefur áður notið mikillar hylli á fjölum Leikfélags Reykjavíkur og muna margir eftir Gísla Halldórssyni og fleiri ástsælum leikurum í hlutverkum sínum í verkinu. Leikstjóri er María Sigurðardóttir en hún leikstýrði m.a. leikritinu vinsæla Sex í sveit.   Fló á skinni er einn besti og eitraðasti gamanleikur allra tíma. Nú eru 100 ár frá því að þessi óborganlegi farsi Feydeau kitlaði fyrst hláturtaugar áhorfenda og hóf sannkallaða sigurför um heiminn. LA fagnar tímamótunum með sinni...

Read More

Febrúar – Leikhúsmánuður unga fólksins!

Febrúar er leikhúsmánuður unga fólksins í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Að baki hugmyndinni býr sú sannfæring að leikhúsið eigi brýnt erindi við fólk á öllum aldri og einnig að það sé leikhúsunum nauðsynlegt að eiga samtal við ungt fólk og efla leikhúsaðsókn meðal yngri áhorfenda. Leikhúsin munu af þessu tilefni leggja áherslu á að kynna dagskrá sína og starf fyrir ungu fólki og auka framboð á viðburðum sem geta höfðað sérstaklega til þess. Fimmtánhundruð krónur í febrúar Í tilefni af því að febrúar er leikhúsmánuður unga fólksins býður Þjóðleikhúsið upp á sérstaka dagskrá fyrir ungt fólk, auk þess sem ungu fólki býðst sérlega hagstætt miðaverð í leikhúsið í febrúarmánuði. Í febrúar getur fólk á aldrinum 15-25 ára pantað miða og valið sér sæti á allar sýningar Þjóðleikhússins fyrir aðeins 1500 krónur. Athugið að tilboðið gildir ekki aðeins fyrir sæti sem eru pöntuð samdægurs, heldur er hægt að panta á sýningar fyrirfram. Boðið í leikhús Í tengslum við Vetrarhátíð í Reykjavík verður ungu fóki boðið endurgjaldslaust á leiksýninguna norway.today, en það er sýning sem Farandleikhús Þjóðleikhússins sýnir þessa dagana í framhaldsskólum á landsbyggðinni. Boðssýningin er 8. febrúar en síðan hefjast sýningar fyrir framhaldsskóla og almenning á höfuðborgarsvæðinu Í Kúlunni, Lindargötu 7. Einnig verður yngstu leikhúsgestunum boðið HVENÆR á sprellfjörugu barnasýninguna Gott kvöld sem sýnd er í Kúlunni. Sýningum á Góðu kvöldi lýkur í febrúar. Opið hús Það verður „Opið hús“ í...

Read More

Fjórir hjólastólar og Hundur í óskilum

Rosalegt uppistand verður í Hafnarhúsinu þann 7. febrúar kl. 21:00 þegar gríngengið Hjólastólasveitin og hin landsþekkta hljómsveit Hundur í óskilum rúlla á svið og stíga á stokka. Farið verður með frumsamið og hárbeitt grínefni og flutt verða íslensk þjóðlög og erlendir slagarar á svo kostulegan hátt að seint gleymist. Kynnir er Ágústa Skúladóttir. Hjólastólasveitin er skipuð meðlimum Halaleikhópsins og var stofnuð eftir námskeið í uppistandi sem Ágústa Skúladóttir hélt hjá leikfélaginu sl. haust. Sveitin hefur komið fram m.a. á Stuttverkahátíðinni Margt smátt í Borgarleikhúsinu og einnig fór hún í túr til Akureyrar þar sem hún kom fram á nokkrum...

Read More

Skemmtikvöld hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Föstudaginn 1. febrúar verður frumsýnt skemmtikvöld hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Fram koma hinar stórskemmtilegu Helgafellssystur ásamt félögum úr LM, en þær gerðu garðinn frægan fyrir ári síðan með eftirminnilegri fjáröflunarsamkomu sinni. Handritshöfundur er María Guðmundsdóttir og leikstjóri Kjartan Þórarinsson. Frumsýning föstudaginn 1. febrúar kl. 20:00 2. sýning sunnudaginn 3. febrúar kl. 20:00 3. sýning fimmtudaginn 7. febrúar kl. 20:00 Miðapantanir í síma 566 7788 Miðaverð 1000 krónur...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert