Óþelló, Desdemóna og Jagó á Lókal
Leikritinu Óþelló, Desdemóna og Jagó sem frumsýnt var 30. janúar á litla sviði Borgarleikhússins hefur verið boðin þáttaka á Lókal, alþjóðlegri leiklistarhátíð sem fram fer í Reykjavík í byrjun mars. Sýningin er samvinnuverkefni Draumasmiðjunnar, Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins. Óvenjuleg leikgerð Gunnars I. Gunnsteinssonar sem byggir á leikritinu Óþelló eftir Shakespeare hefur vakið athygli og óhætt að fullyrða að um einstaka tilraun er að ræða í íslensku sviðslistaumhverfi. Í sýningunni eru aðeins þrjú hlutverk. Óþellós er dansaður af Brad Sykes. Desdemóna er leikin af heyrnarlausu leikkonunni Elsu G. Björnsdóttur og Jagó er leikinn af Hilmi Snæ Guðnasyni. Aðrir aðstandendur sýningarinnar eru...
Read More


