Kommúnan frumsýnd í Borgarleikhúsinu
Leikritið Kommúnan, eftir Gísla Örn Garðarsson, byggt á kvikmynd Lukas Moodyssons, Tillsammans, verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu næstkomandi fimmtudag, þann 21. febrúar. Kommúnan er gamanleikur með dökkum undirtón, nostalgískt leikrit um vandamálin og hamingjuna sem felst í því að vera manneskja umkringdur öðrum manneskjum. Kommúnan er samstarfsverkefni Vesturports og Leikfélags Reykjavíkur. Leikritið fjallar um hóp fólks sem hefur valið að búa saman í kommúnu með hugsjónir hippa um frið, sameign og frjálsar ástir að leiðarljósi, og andæfa um leið allri neysluhyggju og kapitalisma. Allir eru grænmetisætur og fyrirlíta sjónvarp. Lína Langsokkur er álitinn kapítalisti og enginn á sér leyndarmál í...
Read More


