Author: lensherra

Jörundur góður í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið sýnir um þessar myndir alþýðuleikinn Þið munið hann Jörund. Steinþór Þráinsson brá sér í Freyvang og hefur góð orð um sýninguna. Pistillinn er birtur á Leiklistarvefnum með góðfúslegu leyfi höfundar og Vikudags, en þar birtist hann í gær.   Jörundur góður! Freyvangsleikhúsið sýnir leikritið „Þið munið hann Jörund“ eftir Jónas Árnason. Tónlist við söngtexta – írsk, skosk og ensk þjóðlög. Leikstjóri Saga Jónsdóttir, leikmynd Þórarinn Blöndal, lýsing Ingvar Björnsson o.fl., hljóðvinnsla Kristján Edelstein, búningar Kristín Sigvaldadóttir, dansar Elín Halldórsdóttir. Meðal leikara: Ingólfur Þórsson, Hannes Örn Blandon, Stefán Guðlaugsson, Daníel Freyr Jónsson, Jónsteinn Aðalsteinsson, Steingrímur Magnússon. Tónlistarfólk: Hermann Arason,...

Read More

Bærinn breiðir úr sér í Keflavík

Föstudaginn 7. mars frumsýndi Leikfélaga Keflavíkur revíuna „Bærinn breiðir úr sér“ eftir Breiðbandið, en það skipa þeir Magnús Sigurðsson, Rúnar Hannah og Ómar Ólafsson. Leikstjóri er Helga Braga Jónsdóttir, danshöfundur er Josy Zareen og tónlistarstjóri er Júlíus Freyr Guðmundsson.   Revían fjallar um lífið í Reykjanesbæ og m.a tekið fyrir það gullgrafaraæði sem ríkti og ríkir enn á gamla varnarsvæðinu. Leikarar í sýningunni eru 18 en alls koma ríflega 30 manns að henni á einn eða annan hátt. Sýnt er í Frumleikhúsinu í Keflavík en sl. haust voru 10 ár frá því það var tekið í notkun. Revían er...

Read More

Bingó til Riga

Norður-evrópska áhugaleikhúsráðið, NEATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum á tveggja ára fresti og skiptast aðildarlöndin á að halda hana. Í sumar er komið að Lettlandi og verður hátíðin haldin í Riga dagana 5. til 10. ágúst. Til hennar er boðið sýningum frá aðildarlöndum NEATA: Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Lettlandi. Að þessu sinni sóttu þrjú íslensk leikfélög um að senda sýningar. Þau eru Leikfélag Fljótsdalshéraðs með Listina að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssona, Hugleikur í Reykjavík með Útsýni eftir Júlíu Hannam í leikstjórn Rúnars Lund og Silju Bjarkar Huldudóttur og Leikfélag Kópavogs...

Read More

Að byggja BAÐSTOFUNA

Bandalag íslenskra leikfélaga og fræðsludeild Þjóðleikhússins bjóða höfundum, leikstjórum, listrænum hönnuðum og öðrum áhugasömum upp á námskeið um uppsetningu BAÐSTOFUNNAR eftir Hugleik Dagsson. Námskeiðið er kærkomið tækifæri til að kynnast starfinu bak við tjöldin, skoða umgjörð, hugmyndavinnu, útfærslu og alla þá listrænu og tæknilegu vinnu sem liggur að baki leiksýningar. Síðasti skráningardagur er 25. mars 2008. Að baki BAÐSTOFUNNAR stendur hópur listamanna sem hefur unnið saman að nokkrum sýningum, Stefán Jónsson er leikstjóri, Ilmur Stefánsdóttir sér um leikmynd, Egill Ingibergsson um lýsingu, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir um búninga og hljómsveitin Flís um tónlist. Gert er ráð fyrir að þátttakendur sjái...

Read More

Dubbeldusch frumsýnt á fimmtudag

Nýtt íslenskt leikrit, Dubbeldusch, eftir Björn Hlyn Haraldsson verður frumsýnt hjá LA á fimmtudag, 13. mars. Hér er á ferðinni ljúfsárt verk um mann sem stóð frammi fyrir erfiðu vali fyrir þrjátíu árum en nú bankar fortíðin upp á. Björn Hlynur leikstýrir verkinu sjálfur en Hilmar Jónsson leikur aðalhlutverkið en hann hefur ekki leikið að ráði á sviði síðan blómlegur leikstjórnarferill hans hófst. Nokkrum sinnum á lífsleiðinni gerast atburðir í lífi okkar sem breyta öllu. Í kvöld kemur einkasonurinn í sumarbústað fjölskyldunnar og kynnir nýja unnustu fyrir foreldrum sínum. Smátt og smátt rennur upp fyrir föðurnum að með komu...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert