Baðstofunni boðið til Wiesbaden
Leiksýningu Þjóðleikhússins á Baðstofunni hefur verið boðið á leikritatvíæringinn í Wiesbaden í Þýskalandi í sumar. Þar fer fram ein þekktasta leiklistarhátíð Evrópu, en hún er helguð nýjum leikritum. Baðstofan er þriðja leikrit Hugleiks Dagssonar en verkið var frumsýnt í leikstjórn Stefáns Jónssonar í Kassanum þann 9. febrúar sl. Tvíæringur þessi er stærsta leiklistarhátíð Evrópu sem einvörðungu kynnir verk núlifandi leikritahöfunda en í ár mun hátíðin standa frá 12.- 22. júní. Aðstandendur hátíðarinnar ferðast vítt og breitt um Evrópu til þess að kynna sér fjölbreytt leikhúslíf landanna og má því gera ráð fyrir að á hátíðinni verði rjómi þess allra...
Read More


