Engisprettur frumsýndar 27. mars
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Engisprettur eftir serbneska leikskáldið Biljana Srbljanović á Stóra sviðinu þann 27. mars nk. í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Þetta ljúfsára verk fjallar á manneskjulegan og heillandi hátt um samskipti fólks, baráttu ólíkra kynslóða og samskipti í fjölskyldum, togstreituna milli foreldra og barna, systkina og hjóna. Við kynnumst hópi persóna og fylgjumst með því hvernig örlög þeirra eru samofin á sérstæðan hátt. Kolsvartur húmor Srbljanović, angurværð og mannleg hlýja renna saman á einstakan máta í þessu margslungna verki. Biljana Srbljanović er álitin eitt athyglisverðasta unga leikskáld Evrópu í dag. Hún sló í gegn með fyrsta leikriti sínu...
Read More


