Ávarp Alþjóða leiklistardagsins, 27. mars 2008
Leiklistarsamband Íslands hefur ávallt fengið íslenskan leikhúslistamann til að semja sérstakt ávarp í tilefni Alþjóða leiklistardagsins. Hefur sú hefð skapast að það hafi verið flutt af höfundi í útvarpi þann dag, sem og af stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu. Þá hafa leikhúslistamenn um allt land stigið fram fyrir tjald leikhúsa sinna og flutt ávarpið íslenska þetta kvöld. Dagblöð hafa gjarnan birt ávarpið og það hefur birst á ýmsum vefsíðum menningarstofnana og fjölmiðla. Ávarpið semur að þessu sinni leikarinn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson. Frá árinu 1962 hefur Alþjóða leiklistardagurinn verið haldinn hátíðlegur um allan heim. Þá hefur heimskunnur leikhúslistamaður verið...
Read More


