Così fan tutte í Íslensku óperunni
Hvað gerist þegar saman koma 25 söngnemendur, 30 nemendur í hljóðfæraleik, Mozart og hópur atvinnufólks úr íslensku tónlistar- og leikhúslífi? Svar: Così fan tutte í Íslensku óperunni ævintýraleg, uppátækjasöm og stórskemmtileg uppfærsla Óperustúdíós Íslensku óperunnar, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur, á einu af meistaraverkum óperubókmenntanna, þar sem hlutirnir eru langt frá því að vera það sem þeir sýnast. Frumsýning er sunnudaginn 6. apríl kl. 20. Così fan tutte eftir W.A. Mozart verður tekin fyrir að þessu sinni í Óperustúdíói Íslensku óperunnar, sem er vettvangur innan Íslensku óperunnar þar sem langt komnir og hæfileikaríkir tónlistarnemendur fá tækifæri til að spreyta...
Read More


