Skeifa Ingibjargar á Grand Rokk
Leikfélagið Peðið frumsýnir rokkkabarettinn Skeifu Ingibjargar eftir Benóný Ægisson á efri hæð Grand Rokk, laugardaginn 7. júní klukkan 15.00. Verkið fjallar um Ingibjörgu, stórfrænku Jóns forseta og síðar konu hans, sem beið sjö ár í festum eftir því að Jón giftist henni. Á meðan á biðinni stóð kom hún sér upp rosalegustu skeifu sem höfundur hefur séð á ljósmynd og varð hún honum innblástur að ritun verksins. Fjölnismenn, ástmögurinn Nasi Hall og dæmdir glæpamenn í Höfn koma einnig við sögu en síðan er hoppað hundrað ár eða svo í tíma og leitast við að skilgreina hvernig nútíma Íslendingar hafa...
Read More


