Author: lensherra

SL heldur málþing i Iðnó

Fimmtudaginn 29. Maí kl. 12-14 halda Sjálfstæðu leikhúsin málþing í Iðnó um stöðu stjálfstætt starfandi sviðslistamanna. Yfirskrift málþingsins er „Er starfsumhverfi sjálfstæðra leikhópa í takt við tímann?“ Markmið málþingsins er að hefja samræður milli ráðamanna og sjálfstætt starfandi sviðslistamanna um það starfsumhverfi sem boðið er upp á í dag en jafnframt að varpa ljósi á þá þróun sem hefur orðið á mikilvægi atvinnuleikhópa fyrir íslenskt samfélag. Mikil gróska hefur verið í starfseminni undanfarin ár og hið síbreytilega starfsumhverfi sviðslistamanna kallar á sveigjanlegt kerfi sem getur brugðist skjótt við þeim ólíku þörfum sem sjálfstætt starfandi sviðslistamenn þurfa til að þroskast...

Read More

Lokasýning á Barninu 30. maí

Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir núna næstkomandi föstudagskvöld leikritið Barnið eftir Edward Albee í leikstjórn Lárusar Vilhjálmssonar í síðasta sinn. Sýningin hest klukkan 20.00 og í tilefni af 100 ára afmælis Hafnarfjarðarbæjar býður leikfélagið FRÍTT á þessa sýningu. Þar sem sætaframboð er takmarkað er samt sem áður nauðsynlegt að panta miða og það er hægt að gera í símum 842-2850 og 555-1850 eða með tölvupósti á leikfelagid@simnet.is. Nánari upplýsingar um verkið eru á www.123.is/lh. Leikfélagið er til húsa í Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði....

Read More

Spennandi námskeið á Act alone í sumar

Sigurður Skúlason leikari heldur námskeið í textaflutningi, laust mál og bundið á einleikjahátíinni Act alone sem haldin verður á Ísafirði í sumar. Yfirskrift námskeiðsins er „Hvað felst í textanum og hvernig komum við því til skila í flutningi?“. Kennt verður fimmtudaginn 3. og föstudaginn 4. júlí í Háskólasetri Vestfjarða þar sem skráning fer jafnframt fram í síma 450 3040 eða á netfanginu info@hsvest.is. Þátttökugjald er 10.000. Mikilvægi þess að geta greint texta og túlkað er mikilvægt öllum leikurum sem og öðrum sem koma fram hvort heldur á bæjarstjórnarfundi eða á þorrablóti. Sigurður Skúlason er vel kunnur fyrir leik sinn...

Read More

Halaleikhópurinn í Þjóðleikhúsinu

Á hverju ári stendur Þjóðleikhúsið fyrir vali á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, tilkynnti um valið á áhugasýningu ársins á þingi Bandalags íslenskra leikfélaga í Skagafirði þann 3. maí s.l., en fyrir valinu í ár varð sýning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu, leikgerð Dale Wasserman byggðri á skáldsögu Ken Kesey í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Að venju verður sýningin sem fyrir valinu varð sýnd í Þjóðleikhúsinu, en Gaukshreiðrið verður sýnt á Stóra sviðinu miðvikudaginn 4. júní nk. Leikstjóri sýningarinnar er Guðjón Sigvaldason. Markmið Halaleikhópsins er að „iðka leiklist fyrir alla“. Hópurinn hefur sett upp sýningar ár hvert sem margar hverjar...

Read More

Tilnefningar til Grímunnar 2008

Leiklistarsamband Íslands boðar til fréttamannafundar föstudaginn 16. maí á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Fundurinn hefst kl. 16. Tilkynnt verður um hvaða sýningar og listamenn hljóta tilnefningar til Grímunnar – Íslensku leiklistarverðlaunanna árið 2008. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt er verndari Grímunnar, afhendir þeim listamönnum viðurkenningar er tilnefningar hljóta. Gríman – Íslensku leiklistarverðlaunin verða svo veitt við hátíðlega athöfn föstudaginn 13. júní í Þjóðleikhúsinu. Þetta verður í sjötta sinn sem Grímuhátíðin er haldin, en Gríman var fyrst veitt sumarið 2003 í Þjóðleikhúsinu. Hátíðin verður sýnd í beinni útsendingu Sjónvarpsins.   Alls komu 80 frumsýnd sviðsverk til álita til...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert