Author: lensherra

Skoska leikritið krufið

Hópur leikara Þjóðleikhússins starfar þessa dagana í vinnusmiðju kenndri við eina þekktustu hetju Shakespeares, sjálfan Makbeð. Þessi hópur mun sýna afraksturinn af vinnumiðjunni í haust en að þessu sinni er farin fremur nýstárleg leið að þessari merku leikhúshetju Shakespeares. Vinnusmiðjuna leiðir Stefán Hallur Stefánsson leikari en varnarþing hennar er á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Vinnan hefur þó teygt anga sína víðar, upp á þak Þjóðleikhússins, niður á torg og eru málin tekin að þróast í forvitnilegar en blóðugar áttir. Leikritið um Makbeð er meðal þekktustu harmleikja Shakespeares og því ræðst þessi ungi og áræðni hópur ekki á garðinn þar sem hann...

Read More

Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz

Í sumar mun Leikhópurinn Lotta sýna undir berum himni fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz víðsvegar um landið en leikhópurinn sýndi einmitt Dýrin í Hálsaskógi í fyrrasumar við miklar vinsældir. Frumsýning verður sunnudaginn 1. júní í Elliðaárdal og verða þá tvær sýningar sú fyrri klukkan 14:00 og seinni klukkan 17:00. Verkið verður síðan sýnt í Elliðaárdalnum sýnt nær alla miðvikudaga í sumar kl. 18.00. Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Ármann Guðmundsson og er hann jafnframt höfundur tónlistar og söngtexta ásamt þeim Baldri Ragnarssyni, Eggerti Hilmarssyni og Snæbirni Ragnarsyni en þeir eru allir meðlimir hljómsveitarinnar Ljótu hálfvitarnir. Flestir þekkja söguna af ævintýralegu...

Read More

SL heldur málþing i Iðnó

Fimmtudaginn 29. Maí kl. 12-14 halda Sjálfstæðu leikhúsin málþing í Iðnó um stöðu stjálfstætt starfandi sviðslistamanna. Yfirskrift málþingsins er „Er starfsumhverfi sjálfstæðra leikhópa í takt við tímann?“ Markmið málþingsins er að hefja samræður milli ráðamanna og sjálfstætt starfandi sviðslistamanna um það starfsumhverfi sem boðið er upp á í dag en jafnframt að varpa ljósi á þá þróun sem hefur orðið á mikilvægi atvinnuleikhópa fyrir íslenskt samfélag. Mikil gróska hefur verið í starfseminni undanfarin ár og hið síbreytilega starfsumhverfi sviðslistamanna kallar á sveigjanlegt kerfi sem getur brugðist skjótt við þeim ólíku þörfum sem sjálfstætt starfandi sviðslistamenn þurfa til að þroskast...

Read More

Lokasýning á Barninu 30. maí

Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir núna næstkomandi föstudagskvöld leikritið Barnið eftir Edward Albee í leikstjórn Lárusar Vilhjálmssonar í síðasta sinn. Sýningin hest klukkan 20.00 og í tilefni af 100 ára afmælis Hafnarfjarðarbæjar býður leikfélagið FRÍTT á þessa sýningu. Þar sem sætaframboð er takmarkað er samt sem áður nauðsynlegt að panta miða og það er hægt að gera í símum 842-2850 og 555-1850 eða með tölvupósti á leikfelagid@simnet.is. Nánari upplýsingar um verkið eru á www.123.is/lh. Leikfélagið er til húsa í Gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði....

Read More

Spennandi námskeið á Act alone í sumar

Sigurður Skúlason leikari heldur námskeið í textaflutningi, laust mál og bundið á einleikjahátíinni Act alone sem haldin verður á Ísafirði í sumar. Yfirskrift námskeiðsins er „Hvað felst í textanum og hvernig komum við því til skila í flutningi?“. Kennt verður fimmtudaginn 3. og föstudaginn 4. júlí í Háskólasetri Vestfjarða þar sem skráning fer jafnframt fram í síma 450 3040 eða á netfanginu info@hsvest.is. Þátttökugjald er 10.000. Mikilvægi þess að geta greint texta og túlkað er mikilvægt öllum leikurum sem og öðrum sem koma fram hvort heldur á bæjarstjórnarfundi eða á þorrablóti. Sigurður Skúlason er vel kunnur fyrir leik sinn...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert