Haustfundur Bandalagsins og námskeið í stjórnun leikfélaga
Námskeið í stjórnun leikfélaga og Haustfundur 2008 verða haldin í Leikhúsinu, nýju leikhúsi Leikfélags Kópavogs að Funalind 2, Kópavogi laugardaginn 22. nóvember. Námskeiðið verður haldið undir formerkjunum Listin að stjórna leikfélagi – Stjórnun leikfélaga og lítið eitt um kynningarmál. Fulltrúar í stjórn Bandalags ísl. leikfélaga halda erindi og taka þátt í umræðum undir stjórn formannsins, Þorgeirs Tryggvasonar. Námskeiðið hefst kl. 9:00. Námskeið er þannig byggt upp. Verkefni stjórnarmanna Almenn verkaskipting í stjórnum og viðfangsefni sem sérstaklega eiga við leikfélög. Leikárið Frá verkefnavali til lokasýningarpartís með viðkomu í leikstjórasamningum, kynningu innan félags, fjárhagsáætlunum, styrkumsóknum til Bandalagsins og annarra og leikferðum...
Read More


