Utan gátta frumsýnt 25. október
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Utan gátta eftir Sigurð Pálsson laugardaginn 25. október nk. í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Sýningar verða í Kassanum við Lindargötu 7. Sigurður Pálsson er eitt þekktasta leikskáld okkar, en auk leikrita hefur hann sent frá sér þrettán ljóðabækur og þrjár skáldsögur. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2007 fyrir Minnisbók. Þjóðleikhúsið sýndi leikrit Sigurðar, Edith Piaf, við miklar vinsældir. Leikrit hans hafa einnig meðal annars verið sett upp hjá Leikfélagi Reykjavíkur, sem sýndi Einhver í dyrunum, Völundarhús og Hótel Þingvelli, og Nemendaleikhúsi Leiklistarskóla Íslands, sem sýndi Tattú, Miðjarðarför, Hlaupvídd sex og Undir suðvesturhimni. Í ljóðum sínum, leikritum og...
Read More


