Leiklistarnámskeið fyrir unglinga
Leikfélag Kópavogs heldur leiklistarnámskeið fyrir unglinga með yfirskriftinni "Að segja sögu á sviði". Kennari er Anna Brynja Baldursdóttir sem hefur numið leiklist í Rose Bruford College á Englandi og hefur einnig lokið námi í kennslufræðum frá Listaháskóla Íslands. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 28. október. Kennt verður tvisvar í viku á þriðjudgum og fimmtudögum kl. 16.30-18.30 að jafnaði, með nokkrum undantekningum. Námskeiðið fer fram í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi. Námskeiðið er öllum opið sem uppfylla aldursskilyrði en núverandi meðlimir unglingadeildar LK ganga fyrir með pláss og Kópavogsbúar hafa forgang fram yfir aðra. Námskeiðið er ætlað ungu fólki með áhuga...
Read More


