Author: lensherra

Þjónustumiðstöðin lokuð 12. og 13. nóvember

Vegna ráðstefnu Norrænu Bandalagsskrifstofanna, sem haldin er hér í Reykjavík dagana 12. og 13. nóvember, verður Þjónustumiðstöð Bandalagsins að Suðurlandsbraut 16 lokuð þessa daga. Opnað verður aftur föstudaginn 14. nóvember og verða pantanir sem berast á meðan á lokun stendur afgreiddar þá. Þeir sem þurfa að panta fyrir helgina eru því kvattir til að gera það tímanlega og einnig væri æskilegt að fréttir af leiksýningum sem frumsýna á um helgina bærust ekki seinna en á þriðjudag....

Read More

Hugarflug Leikfélags Selfoss

Leikfélag Selfoss bíður upp á hið árlega Hugarflug sunnudaginn 9. október en þar fá leikfélagsmeðlimir og aðrir frjálsar hendur til að vinna stutt verk, ljóð eða tónlist eftir eigin nefi sem sett er saman í eina sýningu og sýnd í takmörkuðu upplagi. Að þessu sinni eru 5 atriði úr sitt hvorri áttinni og kennir þar ýmissa grasa s.s. rósrauðra riddara, misgóðra þjóna, brjálaðra kellinga og bolta með derhúfu. Allir eru þættirnir í léttum dúr. Leikendur eru í kringum 15, sumir reyndir en margir eru þó að stíga sín fyrstu skref með leikfélaginu. Leikendur í yngri kantinum eru stór hluti hópsins. Hugarflug...

Read More

Kabarett í Freyvangsleikhúsinu

Freyvangsleikhúsið sýnir á föstudags- og laugardagskvöld 7. og 8. nóvember sinn árlega Kabarett. Kabarettinn í ár ber heitið Skítt með Kerfil – tökum slátur! Löng hefð er fyrir því í Eyjafjarðarsveit að setja upp kabarettsýningu með frumsömdu efni þar sem atburðir líðandi stundar, innan sveitar sem utan, eru skoðaðir í spaugilegu ljósi. Tónlist skipar stóran sess að vanda en sýningin í ár er sérstaklega helguð því að 25 ár eru frá því að fyrsti Kabarettinn var settur upp í Freyvangsleikhúsinu. Á föstudaginn er fjölskyldusýning en að lokinni laugardagssýningunni er dansleikur með hljómsveitinni Æsir. Freyvangsleikhúsið hefur ákveðið að leggja sitt...

Read More

Vestrið eina frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 7. nóvember verður leikritið Vestrið eina eftir írska leikskáldið Martin McDonagh, frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikritið er fimmta verk leikskáldsins sem sýnt er á íslensku leiksviði og er hann því með ástsælustu leikskáldum landsmanna nú um stundir. Þröstur Leó Gunnarsson og Björn Thors leika óviðfelldna en um leið frekar brjóstumkennanlega bræður sem í kjölfar mikilla sviptinga, ákveða að reyna að lifa í sátt, iðrast og fyrirgefa hvor öðrum áralangar illdeilur og hatur. En leiðin til aukins þroska er erfið. Hnyttin samtöl og bleksvartur húmor einkenna þetta alvöru gamanverk. Það er Jón Páll Eyjólfsson sem leikstýrir, en hann...

Read More

Æfingar hafnar á Shakespeare – Karnival

Halaleikhópurinn hefur nú hafist handa við uppsetningu nýs leikverks fyrir þetta leikár og ber það vinnuheitið Shakespeare – Karnival. Byrjað var  þann 1. nóvember í húsnæði leikhópsins að Hátúni 12. Leikstjóri hópsins að þessu sinni er Þröstur Guðbjartsson, sem er einnig höfundur leikgerðarinnar en hún er unnin uppúr nokkrum verkum Shakespears, Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og  Hinrik fjórða. Sögusvið verksins verður byggt á Þrettándakvöldi og mun sagan gerast á einu kvöldi á Karnevali hjá Orsínó hertoga í Illeríu. Stefnt er að því að frumsýna verkið  í janúarlok. Nánari upplýsingar www.halaleikhopurinn.is...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert