Lápur, Skrápur og jólaskapið
Þann 29. nóvember næstkomandi verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson. Það mun vera seinni frumsýning á verkinu þetta árið því þann 22. nóvember frumsýndi Leikfélag Akureyrar sama verk í Rýminu. Sýningarnar verða keyrðar samhliða og þykir það harla óvenjulegt að tvær uppsetningar á sama verkinu séu sýndar á sama tíma. Það er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson sem leikstýrir á Akureyri en Anna Bergljót Thorarensen sunnan heiða. Það eru allir komnir í jólaskapið í Grýluhelli. Allir nema Lápur og Skrápur. Grýla er ekki sátt við þessa syni sína og sendir þá af stað til að...
Read More


