Blásýra í Ölfusi
Leikfélagi Ölfuss hefur hafið æfingar á leikritinu Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri verksins er Gunnar Björn Guðmundsson. Vel gekk að fá leikara og ganga æfingar vel. Stefnt er að frumsýningu á verkinu 16. janúar n.k. Leikfélag Ölfuss hefur fengið aðstöðu í fyrrum húsnæði hafnarinnar í Þorlákshöfn og er verið að klára að koma munum leikfélagsins fyrir þar. Í tilefni af nýju aðstöðunni verður opið hús þann 13. desember n.k. milli kl. 14:00 og 17:00 og gefst fólki þá tækifæri til að skoða húsið, fá sér kaffi og spjalla. Allir eru velkomnir. Til sölu verða...
Read More


