Author: lensherra

Kærleikskúlan til Halaleikhópsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sæmdi í gær Halaleikhópinn Kærleikskúlunni 2008. Magnús Geir Þórðarson Borgarleikhússtjóri afhenti Guðný Öldu Einarsdóttur leikkonu fyrsta eintakið við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur. Leiklistarvefurinn óskar Halaleikhópnum innilega til hamingju! Kærleikskúlan í ár er hönnuð af Gjörningaklúbbnum sem nefnir hana ALLT SEM ANDANN DREGUR. Biskup Íslands blessaði kúluna. Gjörningaklúbburinn var með gjörning við afhendinguna. Tilganguinn með framleiðslu og sölu kúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna með því að efla starfsemi Reykjadals. Kærleikskúlan er blásin upp af því dýrmætasta sem hverri lifandi manneskju er gefið – andardrætti. Andinn í kúlunni er táknrænn fyrir hið...

Read More

Miði fyrir mynd

Þjóðleikhúsið óskar eftir fjölskyldumyndum, innrömmuðum eða óinnrömmuðum, fyrir uppsetningu á jólasýningu leikhússins á Sumarljósi eftir Jón Kalman Stefánsson. Höfundur leikmyndar er Finnur Arnar Arnarsson en leikstjóri og höfundur leikgerðar Hilmar Jónsson. Myndirnar má senda hvort heldur á stafrænu formi með tölvupósti eða koma þeim á skrifstofu leikhússins. Við leitum að … líflegum og hlýlegum fjölskyldumyndum, gömlum eða nýjum sem fólk vill gefa leikhúsinu í skiptum fyrir miða á sýninguna. Myndirnar mega vera eftirprentanir og af hvaða stærð sem er. Verði myndin notuð í leikmynd Sumarljósa fær eigandi hennar einn miða á sýninguna – og er fólki frjálst að senda...

Read More

Lápur, Skrápur og jólaskapið

Þann 29. nóvember næstkomandi verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson. Það mun vera seinni frumsýning á verkinu þetta árið því þann 22. nóvember frumsýndi Leikfélag Akureyrar sama verk í Rýminu. Sýningarnar verða keyrðar samhliða og þykir það harla óvenjulegt að tvær uppsetningar á sama verkinu séu sýndar á sama tíma. Það er Guðjón Þorsteinn Pálmarsson sem leikstýrir á Akureyri en Anna Bergljót Thorarensen sunnan heiða. „Það eru allir komnir í jólaskapið í Grýluhelli. Allir nema Lápur og Skrápur. Grýla er ekki sátt við þessa syni sína og sendir þá af stað til að...

Read More

Kúlukvöld Unima

Í vetur stendur UNIMA (alþjóðleg samtök brúðuleikhúsfólks) fyrir svokölluðum ,,Kúlukvöldum“ í lok hvers mánaðar í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu (að Lindargötu 7). Þar verða gestir leiddir inn í töfrandi heim brúðuleikhússins með lifandi og fjölbreyttri dagskrá. Miðvikudaginn 26. nóvember kl 20:00 verður haldið síðasta Kúlukvöldið fyrir jól. ,,Áhrifamáttur leikbrúðunnar“ Dagskrá kvöldsins: Hugleiðingar um áhrifamátt brúðuleikhússins Hallgrímur Magnússon, geðlæknir á Landspítalanum, fjallar um áhrifamátt brúðuleikhússins. Hallgrímur hefur í yfir 50 ár haft mikinn áhuga á brúðuleikhúsi og séð brúðuleikhússýningar í ýmsum löndum. Ég gleymi því sem ég heyri, ég man það sem ég sé en skil það sem ég geri Bergljót...

Read More

Steinar í djúpinu frumsýnt

Föstudaginn 21. nóvember mun Lab Loki frumsýna Steinar í djúpinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Steinar í djúpinu er nýtt íslenskt leikverk, byggt á skáldheimi Steinars Sigurjónssonar, aka: Bugði Beygluson, Steinar á Sandi, Sjóni Sands o.s.frv. Hér er ekki um að ræða leikgerð á einu tilteknu verki eftir hann, heldur sjálfstætt leikhúsverk sem sækir innblástur í allt hans höfundarverk og að hluta til í ævi hans og örlög. Verkið er vegferð um “kvasseggjað grjót”, ferðalag um sagnaheim Steinars; um þorpið þar sem lúin þil lykta af hlandi og svita og fullir dusar blanda í svartan dauðann; um ægifegurðir og erkiljótleika djúpsins sem...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert