Author: lensherra

Sumarljós í vetrarmyrkri

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins er leikgerð byggð á skáldsögunni Sumarljós, og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson. Leikritið Sumarljós verður frumsýnt á Stóra sviðinu á annan í jólum í leikstjórn Hilmars Jónssonar, sem jafnframt er höfundur leikgerðarinnar. Í Sumarljósi kynnumst við íbúum í litlu íslensku þorpi. Hversdagslífið þar reynist fullt af stórviðburðum því undir kyrrlátu yfirborði krauma óhamdar ástríður, langanir og þrár. Girndin hnýtir saman daga og nætur, lostinn leitar á þorpsbúana og enginn vill vera einn í nóttinni. Hvers vegna fórnar forstjóri Prjónastofunnar fallegri konu, jeppa og stöðu sinni í samfélaginu til þess að geta horft út í stjörnubjartan...

Read More

Tveggja helga ljósanámskeið

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Ljósanámskeið, kennari Egill Ingibergsson Námskeiðið er fullbókað og 3 á biðlista kl. 9.20 þann 9. janúar! Haldið í Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu 13, 101 Reykjavík, dagana 23. – 25. janúar og 14. og 15. febrúar 2009. Hádegishlé og kaffi eftir því sem við á. Þátttökugjald er 29.800.- á mann fyrir báðar helgarnar. Kennsla er í formi fyrirlestra, sýnikennslu, umræðna og verklegra æfinga. Hámarksfjöldi nemenda er 12. Skráning stendur yfir til 10. janúar á netfangið info@leiklist.is Námskeiðið er ætlað byrjendum og þeim sem vilja auka við grunnþekkingu sína í vinnu við lýsingu í leikhúsi. Ekki eru...

Read More

Margt smátt haldin 23. maí 2009

Stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldin, í fimmta skipti í samvinnu við Borgarleikhúsið, laugardaginn 23. maí nk. Hátíðin verður með svipuðu sniði og síðasta hátíð, sýningar um daginn og hátíðarsamkoma um kvöldið. Öll aðildarfélög Bandalagsins eru hvött til að senda sýningar á hátíðina og er þeim bent á að hjá þjónustumiðstöð Bandalagsins er til mikið úrval stuttverka. Það er alls ekki skilyrði að um frumflutning á verki sé að ræða. Miðað er við að verk taki ekki lengri tíma en 15 mínútur í flutningi. Ekki verður um forval að ræða en ef heildarlengd hátíðarinnar fer yfir tímamörk verða þau...

Read More

Jólagjöf leikhúsáhugamannsins

Nýlega kom út bókin Allt fyrir andann, Saga Bandalags íslenskra leikfélaga 1950-2000. Þar er rakin saga Bandalagsins í 50 ár en allt frá stofnun hefur hreyfingin verið öflugur bakhjarl leikfélaganna í landinu og tilkoma hennar blés nýju lífi í leikstarf úti um allt land. Greint er frá aðdraganda og stofnun Bandalagsins, upphafsárum þess og fyrstu verkefnum. Þá er þráðurinn rakinn í gegnum árin og áratugina og sýnt hvernig hreyfingin þróaðist með tímanum en sú þróun var hreint ekki alltaf átakalaus. Bjarni Guðmarsson sagnfræðingur og áhugaleikari tók saman. Bókin er seld á skrifstofu BÍL að Suðurlandsbraut 16, sími 5516974, netfang...

Read More

Síðustu sýningar á Jesús Guð Dýrlingur

Leikfélagið Grímnir Stykkishólmi hefur að undanförnu sýnt rokkóperuna Jesús Guð Dýrlingur eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Níelsar Óskarssonar. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Brátt fer sýningnum að ljúka og verða síðustu sýningar sem hér segir: Fimmtudaginn 11. desember kl: 20.00 Föstudaginn 12. desember kl: 22.00 Laugardaginn 13. desember kl: 21.00 Þó er ekki loku fyrir það skotið að bætt verði við aukasýningu á milli jóla og nýárs. Sýnt er á Hótelinu, miðaverð er 2500 kr. og hægt er að panta miða í síma 863 0078 (eftir kl. 16:00)...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert