Blúndur og blásýra í Þorlákshöfn
Föstudagskvöldið 16. janúar n.k. mun Leikfélag Ölfuss frumsýna sakamálafarsann Blúndur og blásýru eftir Joseph Kesselring. Leikritið sem er í fullri lengd verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalbjörg Jóhanna Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Haukur Arnarsson, Hulda Gunnarsdóttir, Júlía Káradóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Ólafur Hannesson, Ragnheiður Helga Jónsdóttir, Þórður Njálsson og Þrúður Sigurðar. Leikritið segir frá tveim eldri systrum, Abby og Mörthu sem búa í ættarhúsinu ásamt frænda sínum sem gengur ekki heill til skógar. Þær hafa orð á sér fyrir að vera einstök gæðablóð. Þegar annar frændi birtist skyndilega með að því er...
Read More


