Ástverk í leikferð
Iðnaðarmannaleikhúsið er nýstofnaður leikhópur sem fjallar um stemmninguna meðal iðnaðarmanna og samanstendur hópurinn af leikhúslistamönnum sem allir hafa reynslu af iðnaðarstörfum. Meðlimir Iðnaðarmannaleikhússins eru allir í yngri kantinum, á aldrinum 25 til 34 ára. Ástverk ehf er nýtt íslenskt verk sem varð til upp úr samvinnu hópsins. Verkið byggir bæði á sönnum sögum af vinnustöðum og spunavinnu. Ástverk ehf er grátbroslegt verk með alvarlegum undirtóni sem skoðar stöðu iðnaðarmanna á Íslandi á breytingatímum, en kemur einnig töluvert inn á ímynd karlmennskunar í nútímaþjóðfélagi. Ástmar er fljótfær iðnaðarmaður sem vinnur fyrir verktakafyrirtækið HafnarVerk. Til þess að græða meira á vinnu...
Read More


