Author: lensherra

Síðasta aukasýning á Blúndum og blásýru

Lokasýning á Blúndum og blásýru í flutningi Leikfélags Ölfuss verður laugardaginn 14. febrúar kl. 20 í Versölum, Þorlákshöfn. Blúndur og Blásýra er uppfærsla 4. leikárs Leikfélags Ölfuss og án nokkurs vafa sú stærsta hingað til. Sýningin er bráðskemmtilegur gamanleikur sem fjallar um Brewster fjölskylduna sem er ekki öll þar sem hún er séð. Frumsýnt var þann 16. janúar sl. og hefur verið uppselt á allar sýningar síðan eða sjö talsins. Miðapantanir í síma 893-1863....

Read More

Fólk á förnum vegi… frumsýnt á Dalvík

Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi varðandi uppsetningu á leikverki fyrir unglinga. Er þetta í fjórða sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. Í skólanum er leiklist kennd sem valgrein í 9. og 10. bekk og 16 nemendur sækja þessa faggrein í vetur. Leiklistarhópurinn æfir nú frumsamið leikverk í Ungó er nefnist Fólk á förnum vegi… Leiðbeinandi leikhópsins og leikstjóri uppfærslunnar er Arnar Símonarson. Stjórn LD mun sérstaklega koma að skipulagningu og aðstoða við uppsetningu með ýmsum hætti. Að sögn Arnars er leiklistarhópurinn fjörugur og skemmtilegur, krakkarnir áhugasamir og taka vinnu sína...

Read More

Leiklestur á öllum verkum Söru Kane

Í kjölfar einstaklega vel heppnaðrar frumsýningarinnar á Rústað eftir Söru Kane heldur Borgarleikhúsið áfram kynningu á verkum þessa magnaða leikskálds. Öll önnur verk hennar verða flutt í sviðsettum leiklestrum á Nýja sviðinu næstu fjórar vikurnar. Fjöldi leikara tekur þátt í verkefninu. Gagnrýnendur spara ekki stóru orðin um uppsetningu Kristínar Eysteinsdóttur á Rústað og aðdáendur Söru Kane eiga enn von á góðu. Næstu fjórar vikurnar verða önnur verk hennar flutt í sviðsettum leiklestrum á Nýja sviðinu. Leiklestraröðin hefst þann 10. febrúar á öðru verki Kane, Ást Fedru, síðan verða verkin leiklesin í tímaröð og endað á 4:48 geðtruflun þann 3....

Read More

Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar í Leikhúsinu

Stoppleikhópurinn sýnir nk. miðvikudag 11. febrúar í Leikhúsinu Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl.20.00. Verkið nefnist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum og á hjúkrunarheimilum eldri borgara. Nú gefst almenningi því tækifæri til að berja verkið augum. Aðeins verður þessi eina sýning. Bólu-Hjálmar er nafn sem við höfum öll heyrt. Grunnskólakrakkar vita sennilega flestir að hann var skáld. Þeir sem eldri eru kunna sum ljóðin hans...

Read More

Við heimtum aukavinnu á Ísafirði

Í Edinborgarhúsinu á Ísafirði verður boðið uppá alþýðlega leik- og söngskemmtunina Við heimtum aukavinnu í febrúar. Hér er á ferðinni stórskemmtileg sýning sem er byggð á verkum bræðranna Jónasar og Jóns Múla Árnasona. Flutt verður úrval laga þeirra bræðra s.s. Klara Klara, Riggarobb, Einu sinni á ágústkvöldi, Og þá stundi Mundi, Augun þín blá, Langi Mangi, Við heimtum aukavinnu auk fjölda slagara úr smiðju Árnasona. Hér er sannkölluð söngperla á sviði og ekki sakar að allir geta sungið með. Það er Litli leikklúbburinn í samvinnu við Kómedíuleikhúsið sem stendur að Við heimtum aukavinnu í Edinborgarhúsinu. Miðaverðið er mjög alþýðlegt...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert