Stærsta leiklistarhátíð Íslands haldin á Austurlandi
Þrettán leikhópar ungs fólks á Austurlandi undirbúa nú sýningar á þremur nýjum, íslenskum leikritum. Uppsetning verkanna er liður í Þjóðleik, leiklistarhátíð ungs fólks á Austurlandi, sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhenti forsvarsmönnum verkefnisins um tveggja og hálfrar milljón króna styrk frá alþjóðlegum Samfélagssjóði Alcoa við athöfn í höfuðstöðvum Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði í dag. Hátt í tvöhundruð ungmenni í þrettán leikhópum af öllu Austurlandi, allt frá Vopnafirði að Höfn í Hornafirði, taka þátt í Þjóðleik og æfa nú ný leikverk eftir Bjarna Jónsson, Sigtrygg Magnason og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann...
Read More


