Author: lensherra

Stundum og stundum ekki frumsýnt í Hörgárdal

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir gamanleikinn Stundum og stundum ekki eftir Arnold og Bach í leikstjórn Sögu G. Jónsdóttur fimmtudaginn 5. mars kl. 20:30 á Melum í Hörgárdal.Stundum og stundum ekki var fyrst frumsýnt á Íslandi í Iðnó árið 1940. Á þeim tíma þótti verkið fara langt út yfir velsæmismörk sökum fáklæddra leikara en ekki þótti við hæfi að sjá í bert hold á sviði. Verkið var meira að segja bannað um tíma. Rúmum þrjátíu árum síðar, árið 1972, var stykkið sýnt í eilítið breyttri útgáfu hjá LA við góðan orðstír. Í þessari uppsetningu hjá Leikfélagi Hörgdæla hefur textinn verið styttur...

Read More

Möguleikhúsið frumsýnir Alla Nalla og tunglið

Sunnudaginn 8. mars kl. 14:00 frumsýnir Möguleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit, Alli Nalli og tunglið, í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Leikstjóri er Pétur Eggerz, tónlist er eftir Kristján Guðjónsson en leikmynd og búningar eftir Messíönu Tómasdóttur. Leikarar eru Alda Arnardóttir og Anna Brynja Baldursdóttir. Frumsýningin markar einnig upphafið á samstarfi Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Möguleikhússins. Pössunarpíurnar Ólína og Lína eru mættar til að stytta ykkur stundir næstu þrjá stundarfjórðungana. Þær vita fátt betra en að vera með börnum, fara með þeim í leiki og gera annað skemmtilegt. Þær hafa líka ýmsar sögur að segja af honum Alla Nalla, sem var fyrsti krakkinn sem...

Read More

Óskar og bleikklædda konan á Litla sviðinu

Fimmtudaginn 5. mars kl. 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Litla sviðinu einleikinn Óskar og bleikklædda konan eftir Eric-Emmanuel Schmitt. Verkið fjallar um Óskar, tíu ára dreng sem þjáist af hvítblæði og bíður hins óhjákvæmilega á spítala.  Sjálfboðaliði sem kemur reglulega í heimsóknir hvetur Óskar til þess að skrifa bréf til Guðs og skapa sér þannig framtíð sem ósennilegt er að hann muni lifa. Leikritið er í senn einstaklega fallegt, fyndið og hjartnæmt. Það er Margrét Helga Jóhannsdóttir sem flytur einleikinn en það hefur hún áður gert með eftirminnilegum hætti í hlutverki Sigrúnar Ástrósar sem sló heldur betur í gegn. Leikstjóri...

Read More

Aukasýning á Sjeikspírs Karnivali

Vegna fjölda áskorana verður aukasýning á Sjeikspírs Karnivali Halaleikhópsins sunnudaginn 8. mars nk. kl. 17.00 í leikgerð og leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Verkið er unnið upp úr þremur verkum Williams Shakespears: Þrettándakvöldi, Draumi á Jónsmessunótt og Hinriki IV, í þýðingu Helga Hálfdánarsonar. Þetta er ærslafullur gamanleikur, sem gerist á einum sólarhring í Illiríu, á Karnivali hjá Orsínó greifa. Hann er dapur og því koma vinir hans og leika fyrir hann alls kyns gamanleiki, til að létta honum lífið. Við sögu koma margar af þekktustu gamanleikjapersónum Shakespears, eins og t.d. Malvólíó, Tóbías Búlki, Andrés Agahlýr o.fl. Þetta er sem fyrr segir,...

Read More

Heppinn þú Arngrímur Jónsson frumsýnt í MH

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýnir nýtt íslenskt leikrit eftir Gunnar Björn Guðmundsson föstudaginn 27. febrúar. Leikritið fjallar um hóp fólks sem boðað er á fund til bjargar framtíð íslensku þjóðarinnar. Leikritið er samið með spuna og er mjög lífleg og skemmtileg.  Sýningartími er um ein klukkustund og er sýnd í Undirheimum, aðstöðu leikfélagsins í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Miðaverð er 1500 krónur en 1000 fyrir nema, ellilífeyrisþega og öryrkja 1000 kr. Börn undir 12 ára 500 kr. Miðapantanir á leikfelag@nfmh.is og í síma 696-7760 eða 846-2618. Allar sýningar hefjast stundvíslega klukkan 20.00. frumsýning 27. febrúar (uppselt)...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert