Author: lensherra

Á svið í Borgarnesi

Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms frumsýndi föstudaginn 20. febrúar sl. leikritið Á svið eftir Rick Abbot. Þetta er gamanleikur í þremur þáttum. Leikritið fjallar um leikhóp sem er að setja upp  sakamálaleikritið „Hið fúla fólsku morð“ og er óhætt að segja að margt fari úrskeiðis og gangi á ýmsu hjá hópnum. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.   Næstu sýningar verða: Föstudaginn 27. febrúar Sunnudaginn 1. mars   Allar sýningarnar hefjast kl. 20:30. Miðaverð er kr. 2.000 og kr. 1.000 fyrir börn 13 ára og yngri. Miðapantanir í síma: 615-1233 og 848-9043. Einnig hægt að panta í gegnum netfangið asa_dora@hotmail.com...

Read More

Sjóræningjaprinsessan á Selfossi

Sigríður Lára Sigurjónsdóttir skrapp um helgina austur fyrir fjall til að sjá sýningu Leikfélags Selfoss á nýju íslensku barnaleikriti, Sjóræningjaprinsessunni sem Ármann Guðmundsson semur og leikstýrir. Hér greinir hún frá þeirri upplifun: Ég brá mér í leikhús um helgina. Fór við þriðja aðstoðargagnrýnanda að sjá Sjóræningjaprinsessuna hjá Leikfélagi Selfoss. Alltaf gaman að sjá ný barnaleikrit og svona. Auk þess sem sjóræningjaþemað hefur verið algjörlega vanrækt um langa hríð. En leikskáldið og leikstjórinn Ármann Guðmundsson hefur greinilega fengið einhverja flugu í höfuðið um að endurvekja það, á þessum síðustu og verstu, og tekist það ljómandi ágætlega. Sýningin var lífleg og...

Read More

Milljarðamærin snýr aftur í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 27. febrúar frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur verk svissneska leikskáldsins Friederich Dürrenmatt, Milljarðamærin snýr aftur á Stóra sviðinu. Sagan gæti hæglega verið sprottin úr íslenskum samtíma en verkið er skrifað fyrir meira en hálfri öld. Íbúar ónefnds bæjarfélags í efnahagshruni eygja vonarglætu um endurreisn en hún felur í sér blóðuga fórn. Leikstjórn er í höndum Kjartans Ragnarssonar en nokkuð er um liðið frá því að hann leikstýrði síðast hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þetta magnaða verk Friedrich Dürrenmatts var frumflutt árið 1956 og er löngu orðið sígilt. Það er reglulega sett upp víða um heim og hefur verið uppspretta dansverka, söngleikja og...

Read More

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Vínland

Föstudaginn 20. febrúar kl. 20.00 frumsýnir Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit nýjan rokksöngleik, Vínland, eftir heimamanninn Helga Þórsson. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Tónlistin sem er eftir Helga og hljóðfæraleikarana er ákaflega fjölbreytt og nýtur sín vel í nýendurbættu hljóðkerfi Freyvangsleikhússins. Vínland gerist á tímum víkinga meðal norrænna manna á Grænlandi og byggir á Grænlendingasögu og Eiríkssögu rauða, þó nokkuð frjálslega sé farið með efnið. Sögusviðið færist svo yfir til Vínlands í Ameríku. Segir frá ástum og örlögum, kristni og heiðni, víkingum og indjánum, gleði og sorgum en umfram allt mennskuna sem alltaf er söm við sig í gegnum allar aldir....

Read More

Mikið um að vera hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Laugardaginn 21. febrúar kl. 14.00 munu ungliðar Leikfélags Mosfellssveitar frumsýna söngleikinn Töfrataskan. Í söngleiknum kynnast áhorfendur ýmsum ævintýrapersónum eins og Mary Poppins, konungi ljónanna, litlu hafmeyjunni, Aladdin, Móglí og Fríðu. Leikstjórar eru Sigrún Harðardóttir og Agnes Wild. Föstudaginn 13. febrúar s.l. tók LM síðan þátt í Safnanótt Reykjavíkur og fór dagskráin fram í Norrænahúsinu. Sýndar voru þrjár sýningar af stuttverkinu Norræna Draugaráðstefnan eftir Kristján Þorvald Kristjánsson. Það er óhætt að segja að aðsókn hafi verið mjög góð og var sýnt fyrir troðfullum sal á öllum sýningum. Alls tóku þátt í uppsetningunni 17 manns og var leikstjóri Guðný María Jónsdóttir....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert