Author: lensherra

Opnar prufur fyrir kvikmyndina Gauragangur

Zik Zak kvikmyndir og Gunnar B. Guðmundsson, leikstjóri Astrópíu, leita að fólki frá 14 ára og uppúr í aðal- og aukahlutverk fyrir nýja kvikmynd byggða á metsölu bók Ólafs Hauks Símonarsonar. Kvikmyndin verður tekin upp í haust. Prufur í Reykjavík verða sunnudaginn 10. maí – Reykjavík á Kaffi Oliver frá kl. 11-20. ALLIR VELKOMNIR! MARKMIÐ: Að finna hinn eina sanna Orm Óðinsson og ALLA hina. Slóð – Zikzak.is/gauragangur...

Read More

Dauði í kreppunni

Hörður S. Dan. skellti sér nýskeð á sýningu í Jaðarleikhúsinu á verk sem heitir Dauði í kreppunni. Þetta er nýtt verk eftir hann Guðna Líndal Benediktsson sem einnig er leikstjóri verksins. Þetta hafði Hörður að segja um upplifunina: Það sem blasti við mér, þegar ég kom inn í húsið, var dauður maður á miðju gólfinu. Leikhúsið bar þess sterk merki að vera herbergi sem lauslega hafði verið útbúið sem leikhús. Hálfvegis hafði verið neglt fyrir gluggana, svo dagsbirtan var samt áberandi í salnum. leikmyndinni virtist vera tjaslað saman úr nærliggjandi innanstokksmunum og dauðum manni á miðju sviðinu (sem gengið...

Read More

Menningarlandið 2009 á Stykkishólmi 11. og 12. maí

Frá árinu 2001 hafa menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti, síðar iðnaðarráðuneyti, gert menningarsamninga við sjö samtök sveitarfélaga á Íslandi. Landið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, er tengt saman með menningarsamningum um markvissan stuðning ríkissjóðs við menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði. Í íslensku samfélagi hafa að undanförnu átt sér stað miklar breytingar. Það kallar á viðbrögð – ekki síst á sviði menningar – og því tímabært að meta reynsluna af menningarsamningunum og huga að nýrri sókn í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar. Af því tilefni boða menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar til...

Read More

Allt á Rúi og Stúi í Leikhúsinu

Leikfélag Kópavogs frumsýnir barnaleikritið Rúa og Stúa fimmtudaginn 30.apríl kl. 18.00 í Leikhúsinu við Funalind. Rúi og Stúi eru sérkennilegir uppfinningamenn sem hafa fundið upp vél sem getur búið til eða lagað hvað sem er.Bæjarbúar eru afar ánægðir með vélina eins og gefur að skilja en blikur eru á lofti þegar vélin bilar og bæjarstjórinn hverfur. Samtímis fer skuggalegur karakter á kreik í bænum og undarlegustu hlutir fara að hverfa úr fórum bæjarbúa. Sex leikarar taka þátt í sýningunni sem er í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Aðstoðarleikstjóri og allsherjarreddari er Sigrún Tryggvadóttir, Bergrún Íris Sævarsdóttir sér um leikmynd og lýsingu...

Read More

Leikfélag Hafnarfjarðar stendur fyrir höfundasmiðju og stuttverkahátíð

Í kvöld, föstudaginn 24. apríl verður haldin höfundasmiðja hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar í gamla Lækjarskóla. Höfundasmiðjan hefst klukkan 18 um kvöldið og stendur til tvö um nóttina. Ætlunin er að allir þeir sem hafa áhuga á að skrifa stuttverk hittist og skrifi saman hver sinn leikþátt út frá sameiginlegu þema með stuðningi hver frá öðrum. Höfundasmiðjan er öllum opin og meginmarkmiðið að hittast, hlæja og skemmta sér yfir skrifunum. Tólf á hádegi er síðan almennur félagsfundur hjá leikfélaginu, líka öllum opinn þar sem verkin frá föstudagskvöldinu verða leiklesin, valdir leikstjórar, leikarar og aðstoðarfólk úr hópi áhugasamra og gefin vika til...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert