Author: lensherra

Nýtt íslenskt leikrit hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Laugardaginn 2. maí var leikritið Chez Magga frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Þetta er nýtt íslenskt gamanleikrit eftir Maríu Guðmundsdóttur í leikstjórn Guðnýjar Maríu Jónsdóttur, en alls taka þátt í uppsetningunni 19 leikarar og tónlistarmenn. Á sýningunni eru leikhúsgestir boðnir velkomnir á ekta franskt kaffihús þar sem ýmsar skemmtilegar uppákomur eiga sér stað. Chez Magga svolítið í anda Little Britain sjóvarpsþáttanna. Leikritið fjallar um mæðgur sem reka franskt kaffihús. Leikritið gerist á einu kvöldi og ýmsar spaugilegar uppákomur eiga sér stað. Leikritið er interaktíft, leiksviðið er kaffihús og áhorfendur sitja við borð á meðal leikaranna og taka þátt í sýningunni....

Read More

Ályktun frá aðalfundi Bandalagsins

Aðalfundur Bandalags Íslenskra leikfélaga, haldinn að Hlíð í Ölfusi 1. maí 2009 samþykkti svohljóðandi ályktun. Öflug og fjölbreytt starfsemi íslenskra áhugaleikfélaga er sú grasrót sem leiklistarlíf þjóðarinnar sækir næringu sína í. Mikilvægi starfseminnar fyrir blómlega menningu um landið allt verður ekki dregið í efa. Fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum og stöðum þjóðfélagsins sækir í leiklistarstarfið farveg fyrir listræna hæfileika sína, vaxa að trú á eigin getu og finna á eigin skinni hvernig einbeitt vinna að sameiginlegu marki skilar árangri. Á þessum miklu óvissutímum getur starfsemi af þessu tagi skipt sköpum. Aldrei hefur verið mikilvægara að efla...

Read More

Vínland valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Sýning Freyvangsleikhússins á söngleiknum Vínland eftir Helga Þórsson var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2008-2009 af dómnefnd Þjóðleikhússins. Þetta er í sextánda sinn sem athyglisverðasta áhugaleiksýning er valin en sú sýningin er jafnan sýnd í Þjóðleikhúsinu á vordögum. Þetta er jafnframt í þriðja sinn sem Freyvangsleikhúsið fer með sýningu í Þjóðleikhúsið. Umsögn dómnefndar um Vínland var svohljóðandi: „Það er hreint út sagt frábær hugmynd hjá Helga Þórssyni og Freyvangsleikhúsinu að setja á svið rokksöngleik byggðan á víkinga-arfleifð okkar Íslendinga. Helgi Þórsson er aðalhugmyndasmiður þessarar sýningar, sem höfundur tónlistar, texta og útlits sýningarinnar, en er dyggilega studdur af kraftmiklum hópi leikara,...

Read More

Ökutímar í Borgarleikhúsinu

Sýningar á verðlaunaleikritinu Ökutímar hefjast í Borgarleikhúsinu 2. maí næstkomandi en uppsetning verksins fékk afbragðs viðtökur hjá Leikfélagi Akureyrar á síðasta ári. Ökutímar er margslungið leikrit sem segir þroskasögu ungrar stúlku, Lillu. Fjölskylda hennar er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja henni lífsreglurnar. En er Peck bara góður frændi þegar hann býðst til að kenna henni á bíl? Ökutímar er áleitið leikrit sem fjallar um svik, ást og fyrirgefningu og tekur á viðkvæmu máli á óvenjulegan hátt. Hér er á ferðinni þroska- og fjölskyldusaga sem fær áhorfendur til að súpa hveljur en er þó...

Read More

Opnar prufur fyrir kvikmyndina Gauragangur

Zik Zak kvikmyndir og Gunnar B. Guðmundsson, leikstjóri Astrópíu, leita að fólki frá 14 ára og uppúr í aðal- og aukahlutverk fyrir nýja kvikmynd byggða á metsölu bók Ólafs Hauks Símonarsonar. Kvikmyndin verður tekin upp í haust. Prufur í Reykjavík verða sunnudaginn 10. maí – Reykjavík á Kaffi Oliver frá kl. 11-20. ALLIR VELKOMNIR! MARKMIÐ: Að finna hinn eina sanna Orm Óðinsson og ALLA hina. Slóð – Zikzak.is/gauragangur...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert