Dauði í kreppunni sýnt í Jaðarleikhúsinu
Efnahagurinn er í rusli, hagkerfið sprungið, hundruðir hungraðir. Einhversstaðar, einhvernveginn hefur forsætisráðherra verið myrtur. Kreppan stendur sem hæst þegar tveir mótmælendur myrða óvart forsætisráðherrann. Hvert á að láta líkið? Kann einhver að þrífa? Er Grettir sterki nógu sterkur? Er hægt að redda málunum áður en Sigurlaug kemur? Og síðast en ekki síst, er þetta kannski bara allt í lagi? Dauði í kreppunni er leikverk sem samið var í janúar síðastliðnum. Þetta er hárbeitt ádeila, full af svörtum húmor og föstum skotum. Pólítík eins og þú hefur aldrei séð hana áður! Aðeins verða þrjár sýningar á verkinu. ...
Read More


